|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 Fax: 562 1001 utivist@utivist.is webmaster@utivist.is |
Velkomin að myndasögum Útivistar
Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.
Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com
Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.
_______________________________________________________________________
Nýjar myndir hafa bæst við. Ingvi Stígsson sendi þær. Fleiri myndir frá Ingva má skoða hér.
Tuttugu manns mættu á BSÍ til þess að fara í gönguna og tvær konur bættust í hópinn við Straum. Við gengum með ströndinni og skoðuðum gamlar minjar um búsetu á svæðinu, þarna er mikið um hleðslur úr hraungrýti og allskonar mannvistarleifar. Það gætir flóðs og fjöru í ferskvatnstjörnum á svæðinu og svo eru þarna hellisskútar og holur. Þegar margir leggjast á eitt þá er ótrúlega mikill fróðleikur um svæðið sem tínist til, þannig að þetta varð hin besta og fróðlegasta ferð. Veður var þokkalegt fyrir utan einn góðan skúr í bland við haglél. Gangan endaði í Kúagerði eftir 11,4 km. Einar Aðalsteinsson var fararstjóri. Einar Aðalsteinsson og Grétar W. Guðbergsson sendu myndirnar. Fleiri myndir frá Grétari má skoða hér.