|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 Fax: 562 1001 utivist@utivist.is webmaster@utivist.is |
Velkomin að myndasögum Útivistar
Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.
Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com
Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.
_______________________________________________________________________
Síðasta myndakvöld var haldið í nóvember og þá voru sýndar myndir úr hjólaferðinni sem var farin síðastliðið sumar um Vestfirði. Það var vel mætt, stemmningin góð og nutu allir myndanna og veitinganna sem voru í boði.
Næsta myndakvöld verður haldið 1. febrúar nk. kl. 20 í Húnabúð, Skeifunni 11. Sýndar verða myndir úr gönguferð sem farin var í júní sl. um Svínanes við norðanverðan Breiðafjörð. Bærinn Svínanes fór í eyði 1959 en talsverðar minjar um búskap má enn sjá á nesinu. Nú er þar gróskumikill gróður og oft sjást selir á skerjum. Fuglalíf er þar talsvert bæði í klettum og við sjó. Ferðin hófst á Illugastöðum í Skálmarfirði þar sem tjaldað var. Gengið var með allt á bakinu út með Skálmarfirði að eyðibýlinu Svínanesi og tjaldað þar. Daginn eftir var gengið inn með Kvígindisfirði og vestur yfir Axlir og gönguhringnum lokað.
Grétar W. Guðbergsson sendi myndir frá síðasta myndakvöldi.