|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Opið alla virka daga 12 -17 Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 utivist@utivist.is |
Útbúnaðarlisti
Almennur farangur
· Svefnpoki.
· Bakpoki.
· Prímus og pottur (2 - 3 geta sameinast um prímus).
· Flugnanet.
· Eldfæri.
· Hitabrúsi u.þ.b. 1/2 l.
· Vatnsbrúsi.
· Drykkjarílát, diskur og hnífapör.
· Hreinlætisvörur, s.s. tannbursti, sápa og klósettpappír.
· Sólarvörn og varasalvi.
· Sólgleraugu.
· Skyndihjálparbúnaður s.s. plástur á hælsæri, teygjubindi og verkjalyf.
Klæðnaður
Fátt er eins stór þáttur í vellíðan ferðalangs og fatnaður. Veðurfar á Íslandi er óútreiknanlegt og því er nauðsynlegt að fatnaður verji notandann sem best fyrir því veðri sem von er á og einnig því veðri sem ekki er von á.
· Mjúkir eða hálfstífir gönguskór og varareimar. Skórnir þurfa að halda vatni og kulda frá fótunum
og einnig þurfa þeir að styðja vel við ökklann.
· Legghlífar eru ekki nauðsynlegar en æskilegt er að hafa þær með.
· Göngubuxur úr gerviefnum eru góðar. Gallabuxur og annar bómullarfatnaður er afleitur og óþarft að hafa
slíkan fatnað í farangrinum.
· Hlý nærföt úr ull eða gerviefnum. Nærfötin þurfa að halda raka frá líkamanum.
· Göngusokkar úr ull og gerviefnum.
· Peysa og/eða skyrta (þunn flíspeysa er oft góð).
· Vind- og vatnsheldur galli (t.d. gore-tex).
· Vettlingar og húfa.
· Tvö til fjögur aukapör af sokkum.
· Vaðskór, t.d. strigaskór, sandalar eða laxapokar.
Matur
Mataræði í langri ferð sem þessari er eitt af undirstöðuatriðum ánægjulegrar ferðar. Nauðsynlegt er að huga vel að því hvaða matar skal neytt í ferðinni og einnig er nauðsynlegt að
· Á morgnana er gott að neyta matar sem er ríkur af kolvetnum s.s. gróft korn og ávextir. Einnig
er gott að neyta próteinríkrar fæðu, en prótein fást úr kjöti, fiski, eggjum og mjólkurvörum.
Dæmi um morgunmat er 100 - 150 gr. af múslí, hrökkbrauð með smjöri og osti og svo er ágætt
að drekka te eða kaffi.
· Í hádegismat er gott að borða flatbrauð eða brauð með kæfu eða osti, heita pakkasúpu og
orkuríkt nasl á eftir.
· Á kvöldin er gott að borða fituríka fæðu, því þá hefur líkaminn nægan tíma til að melta fæðuna.
Vinsælt er að nota frostþurrkaðan mat sem fæst í útilífsverslunum. Þessi matur er frekar dýr og
því má einnig mæla með pasta og sósu. Eftir kvöldmatinn er gott að hita vatn í kakó og borða
kex eða súkkulaði með.
· Gott er að hafa eitthvað til að grípa í á göngu á daginn, s.s. rúsínur, súkkulaði eða kex.
Trúss
Þótt ferðirnar séu trússferðir er gott að hafa í huga að trússbíllinn er ekki mjög stór. Því skal takmarka umfang þess farangurs sem tekinn er með. Ágætt er að taka ekki meira með en í hefðbundinni ferð þar sem gengið er með allan farangur.