Dags: 21.4.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið í gegnum Hafnarfjörð og beygt til vinstri við iðnaðarsvæði stuttu áður en kemur að álverinu í Straumsvík. Þaðan haldið áfram til Krýsuvíkur, fram hjá kirkjunni að gígaröð sunnan við Krýsuvíkur-Mælifell. Snörp ganga á bratt en ekki hátt fjall, síðan verður farið yfir að Drumbi við suðurendann á Sveifluhálsi. Vegalengd 5 km. Hækkun 200 m.
Dags: 28.4.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns.  Ekið eftir Suðurlandsvegi og beygt inn á veginn í átt að Bláfjöllum. Stuttu áður en kemur að skíðasvæðinu er beygt til hægri og ekið að slysavarnaskýli. Gengið upp í Grindarskörð eftir Selvogsgötunni meðfram gígunum á brúninni og yfir á Stóra-Bolla. Vegalengd 7-8 km. Hækkun 300 m.
Dags: 5.5.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Suðurlandsvegi beygt inn á afleggjara til hægri á móts við Skíðaskálann í Hveradölum. Gengið á Gráuhnúka og þaðan yfir að Stakahnúki í Þrengslum. Vegalengd 4-6 km. Hækkun 100 m.
Dags: 12.5.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Reykjanesbraut og beygt til vinstri við iðnaðarsvæði stuttu áður en komið er að álverinu. Haldið meðfram Kleifarvatni og fram hjá Krýsuvíkurkirkju, síðan er beygt inn á fyrsta afleggjara til vinstri niður í Hælsvík þar sem gangan hefst. Gengið eftir berginu en á þessum árstíma er fuglalífið í algleymingi. Vegalengd 8 km. Hækkun óveruleg.
Dags: 19.5.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið upp í Þormóðsdal fyrir ofan Hafravatn. Stefnan tekin á Hafrahlíð og vegslóða fylgt upp á topp. Þaðan verður förinni beint að Lala og á topp Reykjaborgar. Farið yfir á Þverfell á leið til baka. Vegalengd 6 km. Hækkun 200 m.
Dags: 26.5.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Suðurlandsvegi að Litlu-kaffistofunni. Þar er beygt til hægri og í átt að Jósefsdal. Gengið með Sauðadalahnúkum að Ólafsskarði og þaðan upp á Ólafsskarðshnúka. Vegalengd 6-8 km. Hækkun 300 m.
Dags: 2.6.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Suðurlandsvegi fram hjá Skíðaskálanum í Hveradölum og beygt út af veginum til hægri við skilti sem á stendur Hverahlíð. Gengið að Hverahlíð, áfram inn í Lakakrók og þaðan upp á Stóra-Sandfell. Á bakaleiðinni verður farið niður í Lágaskarð að Lakahnúkum. Vegalengd 8 km. Hækkun 100 m.
Dags: 9.6.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Reykjanesbraut og beygt til vinstri við iðnaðarsvæði stuttu áður en komið er að álverinu. Haldið meðfram Kleifarvatni og þar sem leiðir skiptast við kirkjuna er ekið til vinstri og eftir u.þ.b. fjóra kílómetra er komið að námu við Litlu-Eldborg. Nokkuð létt ganga er eftir stíg upp á Stóru-Eldborg en aðeins á fótinn upp á Geitahlíðina. Fagurt útsýni yfir Krýsuvík og Sveifluháls. Vegalengd 4-5 km. Hækkun 250 m.
Dags: 16.6.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Reykjanesbraut og beygt til vinstri við iðnaðarsvæði stuttu áður en komið er að álverinu. Við Vatnsskarð er beygt til hægri við skilti sem vísar á Vigdísarvelli og haldið áfram að Hrútagjá. Gengið í norðvestur að Markhelluhóli sem er landamerki Krýsuvíkur, Óttarsstaða og Hvassahrauns. Sé vel að gáð sést áletrun á klöppinni. Vegalengd 6 km. Hækkun óveruleg.
Dags: 23.6.
Brottför: kl. 18:30
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Reykjanesbraut og beygt til vinstri við iðnaðarsvæði stuttu áður en komið er að álverinu. Fljótlega eftir að komið er yfir Vatnsskarð er lagt af stað í gönguna inn í Fagradal og upp á Fagradalsmúla. Eftir u.þ.b. tveggja kílómetra göngu í austurátt er komið að Mígandagróf sem er sérstakt náttúrufyrirbæri sem helst má líkja við hringleikahús. Vegalengd 8 km. Hækkun 200 m.
Næsta síða >>