Útivistarræktin, Úlfarsfell

Dags: 11.3.
Brottför: kl. 18:00
Erfiðleikastig:
Verð: 0 kr.
Nr. 1003C02
Á fimmtudögum miðast göngurnar við að veita góða áreynslu og reyna enn frekar á þol göngumanna.  Því er gengið á Úlfarsfell og þannig fæst ríflega 200 metra hækkun.  Hist er kl. 18:00 við skógræktina undir Úlfarsfelli (við Vesturlandsveg á móts við Korpúlfsstaði).  Meðan skammdegið er hvað mest getur verið æskilegt fyrir þátttakendur að hafa ljós meðferðis.  Tilgangur Útivistarræktarinnar er margþættur. Auk þess að standa fyrir útivist og líkamsrækt og viðhalda gönguþoli allt árið er félagslegi þátturinn mikilvægur. Fólk kynnist og spjallar saman á göngunni, fer gjarnan saman í lengri Útivistarferðir eða tekur þátt í öðru félagsstarfi Útivistar. Allir velkomnir ekkert þátttökugjald!