Útivistarræktin, Elliðaárdalur

Dags: 2.8.
Brottför: kl. 18:00
Erfiðleikastig:
Verð: 0 kr.
Nr. 1008A01
Á mánudögum er gengið um Elliðaárdalinn. Lagt er af stað kl. 18:00 frá Toppstöðinni (stóra brúna húsinu í Elliðaárdalnum, ekið frá Ártúnsbrekku). Gengið er upp í gegnum hólmann í ánni og vestan megin við hana upp að Vatnsveitubrú, þar sem farið er austur yfir ána. Áð er við Árbæjarlaug og hópurinn þéttur ef teygst hefur úr honum. Síðan er haldið niður með Elliðaám að austan, farið aftur inn í hólmann við félagsheimili Rafveitunnar og gönguferðinni lýkur á sama stað og hún hófst um það bil klukkutíma og fimmtán mínútum fyrr. Tilgangur Útivistarræktarinnar er margþættur. Auk þess að standa fyrir útivist og líkamsrækt og viðhalda gönguþoli allt árið er félagslegi þátturinn mikilvægur. Fólk kynnist og spjallar saman á göngunni, fer gjarnan saman í lengri Útivistarferðir eða tekur þátt í öðru félagsstarfi Útivistar. Allir velkomnir ekkert þátttökugjald!