Tröllaskagi, frá Eyjafirði og heim að Hólum (4 dagar)

Dags: 5. - 8.8.
Brottför: kl. 08:30 frá Hólum.
Erfiðleikastig:
Gisting:

Verð: 28000 kr.
Félagsverð: 24000 kr.
Nr. 1008L04

Bóka ferð

Gengnar gamlar og nýjar leiðir milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Ferðin hefst og endar á Hólum í Hjaltadal. Gengið milli Eyjafjarðarsveitar og Öxnadals. Farið inn Skjóldal yfir Kambskarð og niður Hóladal í Öxnadal. Tjaldað í Öxnadal. Öxnadalur – Hörgárdalur. "Þar sem háir hólar..." á bernskuslóðum Jónasar Hallgrímssonar. Gengið með Hraunsvatni, upp Kiðlingsdal og Háafjall yfir í Hörgárdal. Tjaldað innan við Staðarbakka í Hörgárdal. Hrikaleg fegurð, djúpir dalir, há fjöll og blá fjallavötn. Gengið inn Hörgárdal, yfir Hjaltadalsheiði og heim að Hólum. Forn þjóðleið. Tjaldað á Hólum í Hjaltadal og rölt um staðinn á síðasta degi ferðar.

Fararstjórar: Una Þórey Sigurðardóttir & Reynir Þór Sigurðsson