Sveinstindur – Skælingar (4 dagar)

Dags: 5. - 8.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:30.
Erfiðleikastig:
Gisting:

Verð: 46000 kr.
Félagsverð: 38000 kr.
Nr. 1008L02

Bóka ferð

Þessi ferð hefst með göngu á Sveinstind. Útsýnið yfir hinn margrómaða Langasjó, sem kúrir upp við Vatnajökul, er hreint ólýsanlegt. Í góðu skyggni má líta yfir bróðurpart hálendis Íslands. Leiðin liggur svo um fáfarnar slóðir meðfram Skaftá og um leynistigu með Uxatindum og fram grösuga Skælinga, en ganga á Gjátind og um sjálfa Eldgjá er góður lokakafli á þessari margbreytilegu leið sem lýkur í Hólaskjóli. Rétt er að vekja athygli ferðalanga á því að í upphafi ferðar er ekið framhjá Hólaskjóli og því geta þeir sem vilja gera sér dagamun í lok ferðar skilið þar eftir vistir. 

Fararstjóri: Ingibjörg Eiríksdóttir

Skálinn við Sveinstind
Skálinn í Skælingum
Nánari ferðatilhögun