Dags: 17. - 18.3.
Brottför: kl. 8:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 12000 kr.
Félagsverð: 10000 kr.
Nr. 1203J01
Fimmvörðuháls er alltaf áskorun. Heillandi og hættulegur, notalegur og næðingssamur, auðveldur og ógnvekjandi! Allt í senn. Í ferð um Fimmvörðuháls þurfa menn að lesa í veður og færð. Farið verður á laugardagsmorgni að Skógum og ekið í skála Útivistar á Fimmvörðuhálsi. Eftir léttan hádegisverð verður ekið og gengið um nýju gosstöðvarnar. Magni og Móði verða skoðaðir og nýja hraunið kannað. Ekið að nýju í skála og notið góðrar kvöldstundar að hætti Útivistarfélaga. Á sunnudeginum verður ekið upp á Mýrdalsjökul og ef veður er gott farið niður norðan jökuls. Ferðinni lýkur á Hvolsvelli. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.
Dags: 29.3. - 1.4
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 20500 kr.
Félagsverð: 18000 kr.
Nr. 1203J02
Ef til er goðsögn áfangastaða jeppamanna þá er það Grímsfjall og ekki að ósekju! Lagt af stað að kvöldi fimmtudagsins upp í Jökulheima og gist þar. Á föstudagsmorgni er haldið á Grímsfjall. Gist í skálum Jöklarannsóknafélagsins á Grímsfjalli í tvær nætur og farið um áhugaverð svæði á jöklinum. Skálarnir bera smiðum sínum og umsjónarmönnum hið fegursta vitni. Að reisa afburðaskála á þessum stað á stærsta jökli Evrópu – það gera engir aukvisar! Frá Grímsfjalli sést til margra áhugaverðra staða; Bárðarbungu í norðri, í norðaustri eru Kverkfjöll með öllum sínum leyndardómum og í suðri blasir Hvannadalshnúkur við. Nánari ferðaáætlun fer eftir veðri og aðstæðum á jöklinum. Aðeins fyrir mikið breytta og vel útbúna jeppa. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.