|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 Fax: 562 1001 utivist@utivist.is webmaster@utivist.is |




Eftir vel heppnað vatnasull síðastliðið haust þykir ástæða til að gefa fleirum færi á að kynnast vöðum Tungnaár og Markarfljóts. Ferðir frumkvöðlanna verða rifjaðar upp og vöð yfir stórfljótin könnuð. Einnig verður farið í gegnum helstu grunnatriði við akstur yfir ár. Gist í Hólaskógi á föstudagskvöldi. Hið sögufræga Hófsvað kannað og lagt að velli ef aðstæður leyfa. Einnig verða skoðaðar fleiri fornar leiðir yfir Tungnaá áður en haldið verður áfram för í skála Útivistar í Strút. Síðasta dag ferðarinnar verður þess freistað að fara yfir Markarfljót í Bása. Þátttakendur hafi með sér vöðlur og vaðprik. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.
Fararstjóri: Hlynur Snæland.