Dags: 2. - 4.9.
Brottför: auglýst síðar.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1109R01
Lagt er af stað á einkabílum úr Reykjavík kl. 19:00 á föstudegi og ekið að ferðaþjónustubænum Þurranesi. Þar er bæði hægt að tjalda (verð kr. 2.000 á tjald) eða vera í svefnpokaplássi (kr. 3.000 á mann) og jafnvel í uppábúnu rúmi (kr. 4.500 á mann). Bílarnir verður geymdir þar til sunnudags. Á laugardeginum verður hjólað inn Gilsfjörð og yfir Steinadalsheiði, á heiðinni er grófur malarvegur og nokkuð bratt upp (smápúl í boði.) Síðan verður hjólað á malbiki um Kollafjörð og inn í mynni Steingrímsfjarðar. Gististaður á laugardagskvöldi er á Þorpum við gamalt íbúðarhús (inni eða í tjald). Sameiginlegur kvöldmatur er á laugardagskvöldinu. Á sunnudeginum er svo áætlað að hjóla yfir Tröllatunguheiði, sem er svipuð og Steinadalsheiðin, en ef ferðalangar eru mjög rasssárir eftir laugardaginn er hægt að velja malbikaða leið um Arnkötludal og Þröskulda. Leiðin frá Þorpum um Tröllatunguheiði að Þurranesi er um 45 km en leiðin um Arnkötludal og Þröskulda u.þ.b. 5 km lengri.
Vinsamlegast bókið ykkur og takið fram hvort þið viljið vera í  tjaldi eða gista inni á netfangið hjolaraekt@gmail.com sem fyrst. 
Dags: 10.9.
Brottför: kl. 10:00.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1109R02
Hjólað á höfuðborgarsvæðinu, nema annað verði auglýst á heimasíðunni og í fréttabréfinu Á döfinni. Lýðræðisleg ákvörðun tekin um það hvert verður farið. Mæting við Toppstöðina í Elliðaárdal. Munið eftir nesti og viðgerðarsetti.