Dags: 19. - 20.5.
Brottför: kl. 09:00 frá Olís við Rauðavatn.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Nr. 1205R02
Mæting við bensínstöð Olís í Norðlingaholti (við Rauðavatn). Ekið að Stóru-Mörk og lagt af stað þaðan kl. 11:30. Hjólað í Bása og grillað um kvöldið. Daginn eftir verður hjólað til baka að Stóru-Mörk. Farangur fluttur á milli staða. Munið eftir nesti og viðgerðarsetti. Allir velkomnir. Ekkert þátttökugjald, en greiða þarf fyrir gistingu í skála. Þátttakendur deila með sér kostnaði við trúss og grill.
Dags: 12. - 19.6.
Erfiðleikastig:
Nr. 1206R01
Flogið til München og hjólað um Bæjaraland í 6 daga. Leiðin liggur um stórbrotið landslag, meðfram fallegum vötnum og litlum bæjum í nágrenni Alpanna. Ferðin er skipulögð af Bændaferðum fyrir Útivistarfélaga. Íslenskur fararstjóri. Takmarkaður fjöldi.

Uppselt. 
Dags: 14. - 17.7.
Brottför: kl. 8:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Nr. 1207R01
Fyrsta daginn er hjólað frá Vegamótum að Arnarstapa. Frá Arnarstapa er farið að Djúpalóni og Öndverðarnesi og endað á Hellissandi. Frá Hellissandi er hjólað í Berserkjahraun og loks á lokadegi ferðarinnar er hjólað til Stykkishólms og þaðan áfram að Vegamótum. Farangur fluttur á milli staða. Ekkert þátttökugjald, en þátttakendur deila með sér kostnaði við trúss. Allir velkomnir. Munið eftir viðgerðarsetti.
Dags: 28. - 29.7.
Brottför: kl. 8:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Nr. 1207R02
Þessi Fjallabaksferð hjólaræktarinnar hefst við Goðaland í Fljótshlíð. Þaðan verður hjóluð skemmtileg leið gegnum Þvergil og framhjá Krók. Hjólað í Hungurfit þar sem slegið verður upp tjöldum. Þaðan verður hjólað áfram vestur Fjallabak og framhjá Þríhyrningi niður að Goðalandi í Fljótshlíð. Farangur fluttur á milli staða. Ekkert þátttökugjald, en þátttakendur deila með sér kostnaði við trúss. Allir velkomnir. Munið eftir viðgerðarsetti.
Dags: 11.8.
Brottför: kl. 9:00.
Erfiðleikastig:
Nr. 1208R01
Mæting við Toppstöðina í Elliðaárdal kl. 9:00 eða við Geirabakarí (kaffihús) í Borgarnesi kl. 10:15. Hjólað um fáfarna vegi á Mýrum, vegi 537 og 540. Munið eftir nesti og viðgerðarsetti. Ekkert þátttökugjald. Allir velkomnir.
Dags: 8.9.
Brottför: kl. 9:00.
Erfiðleikastig:
Nr. 1209R01
Mæting við bensínstöð Olís í Norðlingaholti (við Rauðavatn). Veður og vindar ráða leiðarvali. Hjólað um Þingvallasvæðið og/eða Laugarvatn og endað í Grímsnesinu þar sem hægt verður að komast í heitan pott og grilla. Ekkert þátttökugjald, en þátttakendur deila með sér kostnaði við grill. Allir velkomnir. Munið eftir nesti og viðgerðarsetti.
Dags: 13.10.
Brottför: kl. 10:00.
Erfiðleikastig:
Nr. 1210R01
Hjólað á höfuðborgarsvæðinu, nema annað verði auglýst á heimasíðunni og í fréttabréfinu Á döfinni. Lýðræðisleg ákvörðun tekin um það hvert verður farið. Mæting við Toppstöðina í Elliðaárdal. Munið eftir nesti og viðgerðarsetti.
Dags: 8.12.
Brottför: kl. 10:00.
Erfiðleikastig:
Nr. 1212R01
Hjólað á höfuðborgarsvæðinu, nema annað verði auglýst á heimasíðunni og í fréttabréfinu Á döfinni. Lýðræðisleg ákvörðun tekin um það hvert verður farið. Mæting við Toppstöðina í Elliðaárdal. Munið eftir nesti og viðgerðarsetti.