Dags: 22. - 24.6.
Brottför: kl. 17:00, 18:00 og 19:00
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 27000 kr.
Félagsverð: 22500 kr.
Nr. 1206H02
Jónsmessuhátíð Útivistar skipar sérstakan sess í huga Útivistarfólks. Meðan nóttin er hvað björtust er gengið að næturlagi yfir Fimmvörðuháls. Það er einstakt að upplifa sumarnóttina á þennan hátt. Á leiðinni er gengið um nýtt landsvæði og ummerki eldsumbrota skoðuð áður en komið er niður í gróskumikið skóglendi Goðalands. Á laugardagskvöldinu verður grillmáltíð, varðeldur og söngur með stemmningu sem er engu lík.