Jónsmessuhátíð 2010

Dags: 25. - 27.6.
Brottför: frá BSÍ kl. 17:00, 18:00 og 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Verð: 24500 kr.
Félagsverð: 20500 kr.
Nr. 1006H03

Bóka ferð

Um árabil hefur Útivist haldið Jónsmessuhátíð á Fimmvörðuhálsi og í Básum.  Eftir eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli er margt áhugavert að sjá á þessu svæði, ný náttúrufyrirbæri hafa litið dagsins ljós og ummerki landmótunar á eldfjallasvæði skýrari en áður.  Ganga yfir Fimmvörðuháls er þó metin nokkuð erfiðari en áður og sem stendur ekki hentug fyrir stóra næturgöngu eins og verið hefur á Jónsmessuhátíð Útivistar.  Básar á Goðalandi standa þó fyrir sínu sem fyrr og gróður á svæðinu hefur staðið af sér áhrifamátt eldfjallanna.

Í ljósi þessa höfum við aðlagað Jónsmessuhátíðina í ár að þessum breyttu aðstæðum.  Í stað göngu yfir Fimmvörðuháls verður ekið beint inn í Bása og farið þaðan í áhugaverða göngu þar sem ummerki eldgossins á Fimmvörðuhálsi verða skoðuð.

Ekið er frá BSÍ á áður auglýstum tímum og keyrt sem leið liggur í Bása.  Gengið er inn með Goðalandi að mynni Hrunaárgils en þar er haldið upp á Foldir um svonefndar Hestagötur.  Farið um Morinsheiði, yfir Heljarkamb og upp á Bröttufannarfell þar sem er einstaklega gott útsýni yfir gosstöðvarnar.  Þaðan haldið niður að hrauninu og hinu nýja felli á Fimmvörðuhálsi.  Eftir að svipast hefur verið um þar,  er haldið til baka niður Bröttufönn og niður í Hvannárgil.  Þar sést hraunfossinn niður í gilið vel og hrauntungan sem rann niður gilið.  Gengið upp á Votupalla og þar upp á Réttarfell.  Haldið vestur af Réttarfelli og komið niður við Álfakirkju, þaðan sem gengið er aftur í Bása.
Heildarvegalengd göngunnar er 15 km.

Eftir gönguna hvílast göngumenn fram á laugardag, en á laugardagskvöldið er hefðbundin Básastemning með glæsilegri grillveislu, varðeld og söng.

Þátttakendum er bent á að hafa farangur til göngunnar tilbúinn í bílunum en rútur fara með annan farangur inn að skálasvæðinu.

Básar á Goðalandi
Nánari ferðatilhögun