Farið á einkabílum í Hólaskóg í Gnúpverjahreppi á föstudagskvöldi og gist þar. Næsta dag verður ekið að Sultarfit þaðan sem gengið verður sem leið liggur yfir hraunið og stefnan tekin á Eskihlíðarvatn. Gengið meðfram vatninu að Löðmundi og í skála við Landmannahelli. Til baka verður farið meðfram Sauðleysum um Lambaskarð og upp með Helliskvísl austan Valafells. Þetta er góð leið til þess að kynnast þessu frábæra svæði að vetrarlagi. Leiðarval getur breyst eftir snjóalögum.
Fararstjóri Stefán Þórir Birgisson.
kl. 19:00.