Dags: 18. - 19.2.
Brottför: kl. 8:00.
Skíði:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1202K01
Leiðarlýsing berst þegar ljóst verður hvar snjóalög liggja.
Dags: 15. - 18.3.
Brottför: kl. 17:00.
Skíði:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1203K01
Á Ströndum eru oft góð snjóalög þó auð jörð sé sunnan jökla og styttra er að aka þangað en margur heldur. Ekið verður á eigin bílum í Bjarnarfjörð á fimmtudagskvöldi og gist að Laugarhóli. Á föstudagsmorgni verður gengið á skíðum til Djúpavíkur og gist á hótelinu þar í tvær nætur. Laugardagurinn verður nýttur til skíðaferða í nágrenni Djúpavíkur. Á sunnudag verður skíðað aftur í Bjarnarfjörð. Fararstjóri Stefán Birgisson.
Dags: 23. - 28.3.
Brottför: auglýst síðar.
Skíði:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1203K02
Ferð í samvinnu við norska ferðafélagið HULDREHEIMEN - heimili álfanna. Gönguskíðaferð í nágrenni Lillehammer. Verð NOK 5.090, innifalið er norsk leiðsögn, fæði og ferðir til og frá upphafsstað skíðaferðar (ekki flugferðin). Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Útivistar.
Dags: 5. - 8.4.
Brottför: kl. 09:30.
Skíði:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1204K01
Ekið á eigin bílum inn á Dómadalsleið. Þar spennir skíðafólk á sig skíðin og heldur sem leið liggur í Dalakofann, en jepparnir flytja farangur fyrir skíðagönguhópinn þangað. Á laugardegi og páskadegi verður skíðað í nágrenni skálans, meðal annars um falleg hverasvæði sem oft njóta sín ekki síður að vetri. Á mánudegi, annan páskadag, verður skíðað til baka að bílunum, en jeppar taka þann farangur sem skíðafólk þarf ekki að hafa með sér.
Dags: 25. - 28.5.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1205H01
Margir álíta að Brennu-Njálssaga sé magnaðasta bókmenntaverk þjóðarinnar. Upplifun af verkinu magnast enn frekar þegar vettvangur sögunnar er skoðaður, en í hvítasunnuferð Útivistar í ár er gengið og ekið um heimahérað þeirra Gunnars og Njáls og dregin upp mynd af atburðunum. Farið frá BSÍ kl. 19 á föstudagskvöldi og ekið að Smáratúni í Fljótshlíð og gist þar. Á laugardagsmorgni er ekið að Keldum á Rangárvöllum og gengið þaðan sunnan Knafahóla að Gunnarssteini á Rangárbökkum og þaðan áfram á Þríhyrning.
Dags: 15. - 17.6.
Brottför: frá BSÍ kl. 17:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1206H01
Gengið í Fimmvörðuskála að kvöldi föstudags og gist þar. Á laugardegi er gengið í Bása þar sem gist er seinni nóttina.
Dags: 22. - 24.6.
Brottför: kl. 17:00, 18:00 og 19:00
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1206H02
Jónsmessuhátíð Útivistar skipar sérstakan sess í huga Útivistarfólks. Meðan nóttin er hvað björtust er gengið að næturlagi yfir Fimmvörðuháls. Það er einstakt að upplifa sumarnóttina á þennan hátt. Á leiðinni er gengið um nýtt landsvæði og ummerki eldsumbrota skoðuð áður en komið er niður í gróskumikið skóglendi Goðalands. Á laugardagskvöldinu verður grillmáltíð, varðeldur og söngur með stemmningu sem er engu lík.
Dags: 29.6. - 1.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 17:00
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1206H03
Gengið í Fimmvörðuskála að kvöldi föstudags og gist þar. Á laugardegi er gengið í Bása þar sem gist er seinni nóttina.
Dags: 1. - 3.7.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1207H01
Dalakofinn er einstaklega skemmtilega staðsettur í jaðri Torfajökulssvæðisins fyrir alla sem unna fallegri náttúru, enda þykir háhitasvæðið umhverfis Torfajökul eitt verðmætasta útivistarsvæði landsins. Farið verður í gönguferð á laugardeginum um þetta litríka svæði, en um kvöldið er í boði kraftmikil kjötsúpa af feitum sauð sem áður gekk um Rangárvallaafrétt. Á sunnudeginum verður farið í stutta göngu áður en haldið er heim á leið.
Dags: 6. - 8.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 17:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1207H02
Gengið í Fimmvörðuskála að kvöldi föstudags og gist þar. Á laugardegi er gengið í Bása þar sem gist er seinni nóttina.
Dags: 14. - 15.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 8:30.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1207H03
Farið af stað á laugardagsmorgni og gengið í Fimmvörðuskála. Sunnudagurinn tekinn snemma og gengið í Bása þar sem rúta bíður hópsins.
Dags: 20. - 22.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 17:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1207H04
Gengið í Fimmvörðuskála að kvöldi föstudags og gist þar. Á laugardegi er gengið í Bása þar sem gist er seinni nóttina.
Dags: 27. - 29.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 17:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1207H05
Gengið í Fimmvörðuskála að kvöldi föstudags og gist þar. Á laugardegi er gengið í Bása þar sem gist er seinni nóttina.
Dags: 10. - 12.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 17:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208H01
Þetta er helgin þegar Goðaland breytist í ævintýraheim barnanna. Börn á öllum aldri bregða á leik og njóta þess sem náttúran allt í kringum Bása býður upp á.
Dags: 11. - 12.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 8:30.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208H02
Farið af stað á laugardagsmorgni og gengið í Fimmvörðuskála. Sunnudagurinn tekinn snemma og gengið í Bása þar sem rúta bíður hópsins.
Dags: 11. - 12.8.
Brottför: kl. 8:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208H03
Ferð með allt á bakinu, gist í Húksheiðarskála sunnan Sléttafells eða tjöldum við skálann. Ferðin hefst við Fosssel upp af Hrútafirði og endar við Gilsbakka í Hvítársíðu. Gengið um heiðalönd á slóðum Heiðarvígasögu. Gömul þjóðleið sem oft var farin hér á öldum áður, en mjög fáfarin leið í seinni tíð. Vegalengd ca 45 km.
Dags: 17. - 19.8.
Brottför: auglýst síðar.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208H04
Tilvalin fjölskylduferð. Á föstudagskvöldi er mætt í Bjarkalund, tjaldað og berjadollur gerðar klárar fyrir morgundaginn. Daginn eftir er skipt liði, gengið á Vaðalfjöll og/eða farið í berjamó. Um kvöldið er borðað saman og sultuuppskriftir ræddar. Sunnudagur - enn meiri berjatínsla og haldið heim síðdegis.
Dags: 18. - 19.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 8:30.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208H05
Farið af stað á laugardagsmorgni og gengið í Fimmvörðuskála. Sunnudagurinn tekinn snemma og gengið í Bása þar sem rúta bíður hópsins.
Dags: 14. - 16.9.
Brottför: frá BSÍ kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1209H01
Haustið er góður tími til þess að heimsækja Goðaland því þá gleðja haustlitirnir augun hvert sem litið er. Gönguferðir og holl útivist er einkenni þessarar ferðar, en grillveisla og varðeldur um kvöldið skipar ekki síður mikilvægan sess.
Dags: 28. - 30.9.
Brottför: kl. 19:00 frá skrifstofu Útivistar. Farið á eigin bílum.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1209H02
Eftir að fólk hefur komið sér fyrir í skála er farið í stutta göngu og teknar myndir af næsta nágrenni Dalakofans. Á laugardegi er gengið með myndavélina að vopni um fjölbreytt hálendis- og hverasvæði. Á sunnudegi verður haldið suður með Markarfljóti, nafnlausi fossinn og gígurinn stuttu neðar myndaðir, svo og Ljósártungur austan við Markarfljótið. Þá verður haldið til baka í Dalakofann, gengið frá og ekið heim.
Dags: 30.11. - 2.12.
Brottför: frá BSÍ kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1211H01
Aðventuferðirnar í Bása eru alltaf frábær skemmtun fyrir bæði börn og fullorðna. Vetrarríkið skartar oft sínu fegursta og hlátur barnanna endurómar í fjöllunum. Einhverjar sögur fara af því að jólasveinum bregði fyrir í fjöllunum og jafnvel fleiri meðlimum þeirrar fjölskyldu. Þegar skyggja tekur verður brugðið upp jólahlaðborði og blásið til kvöldvöku.
Dags: 29.12. - 1.1.2013.
Brottför: kl. 08:30.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1212H01
Áramót í fögrum fjallasal eru engu lík. Fyrir marga eru áramót í Básum skemmtileg leið til að bregða út af föstum hefðum, en hefðir annarra felast einmitt í því að dvelja þar um áramótin. Hvort heldur á við þig er jafn víst að þú upplifir skemmtilega stund í Básum um áramót.