Þegar aðstæður kalla á okkur setjum við upp ferðir með skömmum fyrirvara. Þetta getur til dæmis verið þegar veðurspá er sérstaklega spennandi, góðar aðstæður fyrir skíðagöngu, hagstæð skilyrði fyrir jeppaferð á einhverju svæði eða náttúruleg fyrirbæri sem spennandi er að skoða. Ferðaáætlunin inniheldur því ekki tæmandi lista heldur verðum


Dags: 12.2.
Brottför: Kl. 11
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 1500 kr.
Félagsverð: 1000 kr.
Ljósmyndaferð út á Reykjanes fyrir alla áhugasama, þar sem fólk miðlar sín á milli reynslu og kunnáttu í ljósmyndun. Farið er á einkabílum út að Garðskagavita á Reykjanesi þar sem reynt verður að fanga sólarlag ásamt hafi, himni og Snæfellsjökli sem sést í góðu skyggni í 100 km fjarlægð. Brottför frá bensínstöð N1 við Lækjargötu í Hafnarfirði kl. 11. Mætið tímalega fyrir brottför og hafið þátttökugjald með í peningum (ekki hægt að greiða með korti).
Dags: 11.3.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 4900 kr.
Félagsverð: 3800 kr.
Ósar er grunnur fjörður sem gengur inn í Reykjanesskagann norðan við Hafnir. Þar eru vetrarheimkynni margra fugla og áhugavert svæði til fuglaskoðunar seinni hluta vetrar. Gengið verður frá Ósabotnum, norður fyrir fjörðinn og norður með ströndinni út að Hvalsnesi. Á leiðinni eru staðir sem eitt sinn voru þekktir á Íslandi s.s. Gamli Kirkjuvogur, Básendar og Stafnes. Á Hvalsnesi byrjaði Hallgrímur Pétursson sinn prestsskap. Vegalengd 14 km. Göngutími 5 klst.
Dags: 9.4.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 4900 kr.
Félagsverð: 3800 kr.
Sveifluhálsinn er röð af móbergstindum og hnúkum sem liggja meðfram Kleifarvatni að vestanverðu. Gengið verður frá Vatnsskarði eftir næstum endilöngum hálsinum. Hæsti hluti leiðarinnar er ekki í mikilli hæð, en hækkun er samt drjúg því hálsinn er mishæðóttur. Ágætis útsýni er af Sveifluhálsi en aðallega er hálsinn sjálfur áhugaverður, enda hafa veður og vindar myndað alls kyns form í móbergið. Vegalengd 14 km. Hækkun 600 m. Göngutími 6 klst.
Dags: 6.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 12 ATH klukkan tólf
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 4900 kr.
Félagsverð: 3800 kr.
Ferðin verður farin í samstarfi við Fuglavernd. Fuglaskoðun er félagslegur atburður og gaman að skoða fugla og atferli þeirra í tilhugalífinu. Farið verður í Friðland í Flóa, en með í för er Gunnar Tómasson frá Fuglavernd. Fólk er hvatt til að hafa með sér sjónauka og ljósmyndarar ættu að taka góðar aðdráttarlinsur með. Ferðin er skoðunarferð þannig að fólk þarf að hafa með sér góðan skjólfatnað. Skoðunartíminn er áætlaður 4-5 klst.
Dags: 20.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 5800 kr.
Félagsverð: 4600 kr.
Gengið verður upp með Bjarnadalsá og meðfram Baulu. Gamla leiðin um hina raunverulegu Bröttubrekku liggur innst í dalnum og yfir í Suðurárdal. Áhugavert er að sjá þróun í vegagerð frá þessari fyrstu þjóðleið um Bröttubrekku yfir í þann veg sem nú er ekinn. Vegalengd um 10 km. Hækkun 200 m. Göngutími 4 klst.
Dags: 3.6.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Á leið að Gjánni er staldrað við hjá Hjálparfossi. Gjáin er sérstætt gljúfur í Þjórsárdal þar sem eru fallegar bergmyndanir, stuðlað hraun og móberg. Áin Rauðá rennur um Gjána og þar eru margar lindir og fossar. Eftir að Gjáin hefur verið skoðuð verður gengið yfir Stangarfjall að Háafossi og fossinum Granna. Þaðan liggur leiðin niður um Fossárdal að Stöng, yfirbyggðum rústum bæjar sem talinn er hafa farið í eyði árið 1104 eftir mikið öskugos í Heklu. Vegalengd 18 km. Hækkun 300 m. Göngutími 7 klst.
Dags: 22.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Gangan hefst við eyðibýlið Kötlutún vestan við Kalmanstungu. Gengið með rótum fjallsins að Draugagili sem er í fjallinu norðanverðu. Vert er að ganga inn í gilið og út frá því liggur annað gil þar sem gefur að líta stórar bergrósir. Eftir að gilin hafa verið skoðuð verður annað hvort gengið niður með Hvítá þar sem gefur að líta fossa og flúðir þar sem áin rennur í gegnum hraunið eða gengið upp á fjallið og þaðan niður á Efri- og Neðri-Öxl og að Kötlutúni. Vegalengd allt að 20 km. Göngutími um það bil 7 klst.
Dags: 19.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Í norðanverðum Skorradal er Stálpastaðaskógur, einn af þjóðskógum Íslendinga. Þar er trjásafn og fræðslustígar liggja um skóginn. Þema ferðarinnar verður nytjajurtir í skógum og verður hugað að því ætilega sem grær í skógum eða í skjóli þeirra, svo sem berjum, sveppum og jurtum. Auk þess verður að sjálfsögðu reynt að bera kennsl á þær tegundir trjáa og jurta sem vaxa í skóginum. Einnig er hægt að ganga upp fyrir skóginn til að skoða mismun á gróðri innan og utan skógar. Ef tími vinnst til verður komið við í íslenskum birkiskógi.
Dags: 16.9.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Margar herflugvélar fórust hér á landi í seinni heimsstyrjöldinni, en sjaldgæft er að hægt sé að skoða brak úr þremur flugvélum á nánast einum stað. Sú er þó raunin á Fagradalsfjalli og í nágrenni þess. Í þessum þremur slysum fórust 28 menn en 11 komust lífs af. Frá Slögu verður gengið austur fyrir Langahrygg, með viðkomu hjá Drykkjarsteini, þar sem fyrsta flugvélabrakið verður skoðað. Þar fórst Martin PBM-I Mariner, tveggja hreyfla bandarískur flugbátur árið 1941 og með honum ellefu manns. Var það mannskæðasta flugslys á landinu fram að þeim tíma. Vélin var á leið í Skerjafjörð þar sem hún hafði
Dags: 28. - 30.9.
Brottför: kl. 19:00 frá skrifstofu Útivistar. Farið á eigin bílum.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Eftir að fólk hefur komið sér fyrir í skála er farið í stutta göngu og teknar myndir af næsta nágrenni Dalakofans. Á laugardegi er gengið með myndavélina að vopni um fjölbreytt hálendis- og hverasvæði. Á sunnudegi verður haldið suður með Markarfljóti, nafnlausi fossinn og gígurinn stuttu neðar myndaðir, svo og Ljósártungur austan við Markarfljótið. Þá verður haldið til baka í Dalakofann, gengið frá og ekið heim.
Næsta síða >>