Everesthópurinn er ætlaður fólki sem er í þokkalega góðu formi og vill takast á við snarpa áreynslu í lokuðum hópi undir leiðsögn reyndra fararstjóra. Allt eru þetta dagsferðir á laugardögum nema ein næturganga og ein helgarferð frá föstudegi til sunnudags, samtals 15 ferðir. Fjölda þátttakenda verður stillt í hóf og alltaf tveir fararstjórar með í ferð eða fleiri eftir aðstæðum til að tryggja eins og hægt er öryggi þátttakenda.

Þátttakendur greiða hóflegt þátttökugjald og síðan sanngjarnt verð fyrir hverja ferð sem farið er í. Ekið er á eigin bílum en mælst til að fólk safnist saman í bíla til að lágmarka ferðakostnað. Allan búnað fyrir ferðirnar þurfa þátttakendur að sjá um sjálfir en hægt er að fá leigðan jöklabúnað hjá Útivist.


Áætlunin er sem hér segir:
Dags. Fjöll
28.1. Akrafjall
18.2. Jósepsdalshringur
10.3. Esjan - Skálatindur
31.3. Botnssúlur
21.4. Elliðatindar á Snæfellsnesi
12.5. Kirkjufell og Drápuhlíðarfjall
8.6. Eyjafjallajökull eða Snæfellsjökull - næturganga
30.6. Eiríksjökull
21.7. Þórisjökull
11.8. Herðubreið eða Arnarfell hið mikla - helgarferð
1.9. Geirhnúkur
22.9. Lómagnúpur
13.10. Bláfell á Kili
3.11. Hafnarfjall
24.11. Skarðsheiði

Frá janúar til mars verða kvöldgöngur í nágrenni Reykjavíkur. Veður og aðstæður til útivistar ráða tilhögun þeirra en reikna má með eins og hálfs til tveggja tíma snörpum göngum.

Verð: Skráningargjald kr. 17.000
Þátttökugjald í hverja ferð er 3.000 kr. fyrir félagsmenn í Útivist að undanskilinni ferðinni á Herðubreið / Arnarfell hið mikla sem kostar 5.000 kr. Fyrir aðra er þátttökugjald 4.000 kr. í hverja ferð nema 6.000 kr. á Herðubreið / Arnarfell hið mikla. 

Fararstjórar hafa allir góðan grunn í ferðamennsku og búa yfir staðgóðri þekkingu:

Gunnar Hólm Hjálmarsson
Kristíana Baldursdóttir
María Berglind Þráinsdóttir
Reynir Þór Sigurðsson
Stefán Þ. Birgisson

Forðast skulum duglaust dól, 
dáðir undir kynda, 
óstöðvandi fjallafól
fara á bratta tinda.


Server is encountered an error.