Dags: 16.9.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1209D04
Margar herflugvélar fórust hér á landi í seinni heimsstyrjöldinni, en sjaldgæft er að hægt sé að skoða brak úr þremur flugvélum á nánast einum stað. Sú er þó raunin á Fagradalsfjalli og í nágrenni þess. Í þessum þremur slysum fórust 28 menn en 11 komust lífs af. Frá Slögu verður gengið austur fyrir Langahrygg, með viðkomu hjá Drykkjarsteini, þar sem fyrsta flugvélabrakið verður skoðað. Þar fórst Martin PBM-I Mariner, tveggja hreyfla bandarískur flugbátur árið 1941 og með honum ellefu manns. Var það mannskæðasta flugslys á landinu fram að þeim tíma. Vélin var á leið í Skerjafjörð þar sem hún hafði bækistöð. Síðan liggur leiðin að Langhól í Fagradalsfjalli. Þar fórst stór breskur Short Sunderland flugbátur, einnig árið 1941. Einn maður fórst í slysinu og tveir aðrir létust síðar af brunasárum á sjúkrahúsi. Tíu manns lifðu slysið af, mismikið slasaðir. Einn þeirra gekk 20 km vegalengd að Vogum á Vatnsleysuströnd til að ná í hjálp, eftir að hafa farið inn í brennandi flakið til að hjálpa mönnum út úr því. Næst verður gengið að Kastinu í vestanverðu fjallinu. Þar fórst bandarísk B-24 flugvél og með henni fórust fjórtán af fimmtán manna áhöfn. Þetta er mesta flugslys á landinu fram á þennan dag. Í þessu slysi fórst bandaríski hershöfðinginn Frank Andrews, sem var yfirmaður alls herafla Bandaríkjamanna í Evrópu. Talið hafði verið að hann yrði skipaður yfirmaður innrásarliðs bandamanna í Evrópu, en að honum gengnum varð það Dwight D. Eisenhower, hershöfðingi. Þetta slys hafði því viss áhrif á heimssöguna.Að lokum verður gengið fyrir Fremri-Sandhól, yfir Borgarhraun að Suðurstrandarvegi.Vegalengd 14-15 km. Hækkun 300 m. Göngutími 6 klst.