Dags: 14.10.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1210D02
Svínaskarð er á milli Móskarðshnúka og Skálafells og gatan um skarðið er gömul alfaraleið. Gengið er eftir slóða frá Flesjum upp í skarðið sem er í 481 m hæð og síðan niður að göngubrúnni yfir Skarðsá. Vegalengd 11-12 km. Hækkun 380 m. Göngutími 5-6 klst.
Dags: 28.10.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1210D04
Grímsá í Lundarreykjadal er þekkt sem ein albesta laxveiðiá landsins. Efri hluti árinnar, sem er utan laxveiðisvæðisins, er áhugaverður til náttúruskoðunar en þar eru margir fallegir fossar. Lagt verður af stað hjá brúnni yfir Grímsá, skammt frá Brautartungu, og gengið upp með ánni að sunnanverðu. Á leiðinni eru fossar, svo sem Jötunbrúarfoss, Kleppafoss og Kerlingarfoss. Gengið verður að minnsta kosti upp að Selfossi en þaðan má ganga að Reykjatjörnum, yfir Reykjaháls og yfir að Reykjum