Dags: 6.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 12 ATH klukkan tólf
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 4900 kr.
Félagsverð: 3800 kr.
Nr. 1205D01
Ferðin verður farin í samstarfi við Fuglavernd. Fuglaskoðun er félagslegur atburður og gaman að skoða fugla og atferli þeirra í tilhugalífinu. Farið verður í Friðland í Flóa, en með í för er Gunnar Tómasson frá Fuglavernd. Fólk er hvatt til að hafa með sér sjónauka og ljósmyndarar ættu að taka góðar aðdráttarlinsur með. Ferðin er skoðunarferð þannig að fólk þarf að hafa með sér góðan skjólfatnað. Skoðunartíminn er áætlaður 4-5 klst.
Dags: 13.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 5800 kr.
Félagsverð: 4600 kr.
Nr. 1205D02

Ganga umhverfis Hítarvatn þar sem ávallt birtist nýtt sjónarhorn á glæstan fjallahringinn. Fyrst verður gengið eftir alfaraleið við vatnið norðanvert. Vaða þarf eina á. Sunnanmegin er Foxufellið áberandi á vatnsbakkanum og þar liggur leiðin meðal annars um fornan stíg í gegnum Hólmshraunið. Vegalengd 15 km. Hækkun óveruleg. Göngutími 6-7 klst.

Dags: 20.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 5800 kr.
Félagsverð: 4600 kr.
Nr. 1205D03
Gengið verður upp með Bjarnadalsá og meðfram Baulu. Gamla leiðin um hina raunverulegu Bröttubrekku liggur innst í dalnum og yfir í Suðurárdal. Áhugavert er að sjá þróun í vegagerð frá þessari fyrstu þjóðleið um Bröttubrekku yfir í þann veg sem nú er ekinn. Vegalengd um 10 km. Hækkun 200 m. Göngutími 4 klst.
Dags: 26.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Nr. 1205D04
Eyjafjallajökull minnti svo rækilega á sig árið 2010 að öll heimsbyggðin tók eftir. Við eldsumbrotin urðu talsverðar breytingar á landslagi í jöklinum sem forvitnilegt er að skoða og hér gefst færi á því með leiðsögn jarðfræðings. Gengið verður svokallaða Skerjaleið á jökulinn, upp hjá Grýtutindi sem er við Þórsmerkurleið. Þegar upp á Litluheiði kemur verður stefnan tekin á Skerin sem er fyrrum gossprunga sem nú stendur upp úr jöklinum. Gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli verða skoðaðar. Ákvörðun um hvort farið verður 26.5. eða 27.5. ræðst af veðurspá en upplýsingar um það birtast á heimasíðunni. 
Nauðsynlegt er að bóka fyrirfram hjá skrifstofu.
Vegalengd 18-20 km. Hækkun 1500 m. Göngutími 8-10 klst.