|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Opið alla virka daga 12 -17 Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 utivist@utivist.is |
Í kaþólskum sið stóð frægur kross í Kaldaðarnesi og þótti við hæfi að allir heimsæktu hann að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Það þótti þó hæfilegt fyrir konur að sjá hann eingöngu úr fjarlægð. Konum á sunnanverðum Reykjanesskaga var þess vegna talið nægilegt til sáluhjálpar að ganga upp á hæðir þar sem sést yfir að Kaldaðarnesi. Þessar hæðir voru þess vegna kallaðar Kvennagönguhólar.
Í framhaldi af ferðinni í Strandarkirkju sameinast hópurinn Grænavatnsgöngu í tilefni af aldarminningu Sigurðar Þórarinssonar.