Miðvikudagur. Leggjabrjótur

Dags: 16.6.
Brottför: frá BSÍ kl. 20:00. Ath. klukkan átta að kvöldi.
Erfiðleikastig:
Verð: 4900 kr.
Félagsverð: 3900 kr.
Nr. 1006D03
Hefð er komin á að fara næturgöngu um hina vinsælu gönguleið Leggjabrjót aðfaranótt þjóðhátíðardagsins enda fátt betra en að vera á ferðinni á björtum sumarnóttum. Frá Svartagili liggur leiðin um Leggjabrjót meðfram Sandvatni og um Hrísháls niður í Botnsdal. Þetta er nokkuð greiðfær leið þó nafnið gefi annað til kynna. Oft er farið út af hefðbundinni leið; til að skoða efri fossinn í Öxará, Myrkavatn sem Öxará á upptök sín í og Djúpadalsborgir fyrir vestan Sandvatn. Þessi ferð er góð upphitun fyrir næturgönguna yfir Fimmvörðuháls á Jónsmessu. Vegalengd 17 km. Hækkun 500 m. Göngutími 6-7 klst.

Fararstjórar: Jóhanna Benediktsdóttir, Björk Guðbrandsdóttir og Kristinn Atlason.