Hrafnabjörg, 763 m

Dags: 6.6.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Verð: 5200 kr.
Félagsverð: 3600 kr.
Nr. 1006D01
Móbergsstapinn Hrafnabjörg stendur við Þingvallavatn umflotinn hraunum sem runnið hafa á núverandi hlýskeiði. Suðaustan fjallsins liggur gígaröð sem nefnist Eldborgir, gengið verður með henni að fjallinu austanverðu þar sem leitað verður uppgöngu. Vegalengd 10-12 km. Hækkun 400 m. Göngutími 5-6 klst.

Fararstjóri Leifur Hákonarson.