Löngufjörur eru mjög vinsælt útivistarsvæði, einkum meðal hestamanna. Vestasti hluti þeirra er Stakkhamarsnes, gríðarmikil hvít sandfjara, og verður að sæta flóði og fjöru til þess að komast út á það. Farið frá bænum Gaul út á nesið og m.a. skoðuð bein úr skíðishval. Þarna er mikil náttúrufegurð. Vegalengd 10-12 km. Hækkun engin. Göngutími 4-5 klst.
Fararstjóri Ísar Guðni Arnarson.
frá BSÍ kl. 09:30.