Um Útivist

Síðan 1975 hefur Útivist boðið félagsmönnum sínum og öðrum upp á fjölbreyttar ferðir í skemmtilegum félagsskap.

Útivist býður upp á dagsferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir og kvöldferðir með Útivistarræktinni. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi allt frá léttum gönguferðum upp í erfiðar fjallaferðir að sumri og vetri fyrir vel þjálfað fólk.

Á dagskrá jeppadeildarinnar eru margar mismunandi ferðir jafnt sumar sem vetur. Ferðanefndir og framkvæmdastjóri sjá um undirbúning og skipulag ferða.

Nánari upplýsingar fyrir einstakar ferðir er hægt að fá á heimasíðu- eða á skrifstofu Útivistar í síma 562-1000.