|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Opið alla virka daga 12 -17 Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 utivist@utivist.is |
Skálinn var byggður haustið 2002 og er fullbúinn með olíukyndingu, eldunaraðstöðu og vatnssalerni. Aðkoma bifreiða er frá Mælifellssandi en ekinn er jeppaslóði til norðurs er liggur frá Syðri-Fjallabaksleið við vestanvert Mælifell. Frá skálanum má stunda dagsgöngur um mjög spennandi svæði. Af einstökum stöðum má nefna Rauðabotn, Hólmsárlón, Strútslaug og Torfajökul. Skálinn er ákjósanlegur áningarstaður þeirra sem eru að koma gangandi frá Álftavötnum á leið í Hvanngil eða Emstrur. Svefnpláss er fyrir 26. GPS staðsetning er N 63°50.330´W 18°58.477´.
.
Myndirnar hér að neðan eru frá byggingu Strúts haustið 2002. Daníel Lárusson tók myndirnar. Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu.