Álftavötn

Bóka gistingu

Gagnlegar upplýsingar

FÉLAGSMENN

Áhugaverðir staðir í nágrenni

  • GPS-hnit N63°53,890 / V 18°41,467
  • Gistipláss í skála eru 20 talsins
  • Tjaldsvæði (mjög góð).
  • Salerni yfir hásumarið. EKKI klósettpappír.
  • Rennandi vatn yfir hásumarið
  • Gashellur, eldunaráhöld, borðbúnaður.
  • Grillaðstaða.
  • Verð á gistingu í skála:
    • 4.400 kr. fyrir félagsmenn
    • 7.700 kr. fyrir aðra
    • Gistináttaskattur kr. 600 + VSK leggst einnig árið 2024 á hverja gistieiningu.
  • Strútslaug
  • Svartahnúksfjöll
  • Gjátindur
  • Eldgjá
  • Steinbogi á Syðri-Ófæru

 

 Skilmálar

Gangnamannaskálar eru ótvírætt hluti af sögu þjóðarinnar og umferð fólks um hálendið. Í þeim ríkir andi hálendisferða og þangað er hægt að hverfa frá daglegu amstri borgarmenningarinnar, upplifa einfaldleika hálendisins í kyrrð fjallanna. Skáli Útivistar í Álftavötnum er einstaklega vel heppnað dæmi um hvernig megi varðveita þennan anda menningar fyrri alda en um leið fullnægja einföldustu þörfum nútíma ferðamanna. Félagsmenn Útivistar endurreistu skálann árið 2001 og árið 2010 var hann endurbættur og þiljaður að innan. Afraksturinn er vinalegur og þægilegur skáli án alls íburðar.

Algengast er að ekið sé að Álftavötnum úr Skaftártungu inn á Fjallabaksleið nyrðri (F208). Skammt norðan við hálendismiðstöðina Hólaskjól er beygt til vinstri inn á veg F233. Ekið er yfir Syðri-Ófæru á vaði og er rétt fyrir ókunnuga að afla sér upplýsinga um bestu leið yfir vaðið sem sums staðar er stórgrýtt og varasamt fyrir minni jeppa. Skömmu eftir að komið er yfir vaðið er beygt til vinstri og ekinn slóði sem liggur langleiðina að skálanum (ganga þarf um 200 m í skála). GPS-hnit gatnamótanna er N63°53,816 / V 18°42,195.

Ef komið er eftir Fjallabaksleið syðri yfir Mælifellssand er ekið yfir Hólmsá norðan við Háöldu. Þar er ekið eftir vegi F233 framhjá Svartahnúksfjöllum og um Álftavatnakrók að fyrrgreindum slóða að skálanum. Einnig er hægt að koma akandi frá Snæbýli F210.

Skálavörður er ekki í skálanum en skálaverðir í Strútsskála hafa eftirlit með skálanum. Gistingu í skála og tjaldstæði er hægt að greiða hjá þeim, á skrifstofu Útivistar eða með því að greiða í þar til gerðan bauk í skálanum.

 



   




1 / 20

Álftavötn