Síðan fannst ekki

Við biðjumst velvirðingar. Síðan sem þú baðst um fannst ekki.

Ástæður þess gætu t.d. verið:

  • Slóðin er rangt stafsett
  • Síðan hefur verið færð til á vefnum
  • Síðan er ekki lengur til

 


Veftré

Þú getur séð yfirlit yfir þær síður sem eru á vefnum með því að skoða veftréð.


Hafa samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar getur þú haft samband hérna.


Annað

Þú getur líka farið eitt skref til baka á síðuna sem þú varst á. Eða farið á forsíðu vefsins.



  • Skíða-
    ferðir

    Skíðaferðir

    Skíðaferðir eru í boði fram að vori og leitum við þangað sem vænta má góðra snjóalaga. Þær er að finna í dagskrá dagsferða og helgarferða, en einnig bendum við á að alltaf er möguleiki á að skíðaferðir séu settar á dagskrá með skömmum fyrirvara og því er um að gera að fylgjast vel með hér á heimasíðu Útivistar.

    Næstu ferðir

  • Fjalla-
    refir

    Fjallarefir

    Fjallarefir er námskeið sem felur í sér göngudagskrá, þrekþjálfun og námskeið í fjallamennsku. Markmiðið er að byggja upp gönguþrek og úthald, fræða um hagnýta hluti sem tengjast göngu – og fjallaferðum, kynna fjölbreyttar gönguleiðir og að þátttakendur upplifi íslenska náttúru í skemmtilegum félagsskap. Þetta námskeið er tilvalið fyrir byrjendur í útivist.

    Þrekgöngutímar eru alla þriðjudaga kl. 18:00 en gönguferðir tvo laugardaga í mánuði.  Erfiðleikastig eykst eftir því sem líður á námskeiðin.  Fræðsla varðandi hagnýt atriði varðandi klæðnað, næringu og útbúnað verður samhliða göngunum.

    Tvö námskeið eru á árinu 2013, hið fyrra 12.01.-26.05. og hið seinna 7.09.-30.11. Verð fyrra námskeiðsins er 35.000 kr. en seinna námskeiðsins 25.000 kr. Ef bæði námskeiðin eru tekin er verðið samtals 52.000 kr.

    Fjöldi þátttakenda á námskeiðunum er takmarkaður og kappkostað er að veita persónulega þjónustu. Þátttakendur koma á eigin bílum á upphafsstað göngu en geta sameinast í bíla eftir hentugleikum.

    Fararstjórar eru Linda Udengård, Andri Lefever, Baldur Þorsteinsson, Björg Guðbrandsdóttir, Ása Ögmundsdóttir, Sverrir Andrésson og Vala Friðriksdóttir

    Næstu ferðir

    21. maí 2013

    Þriðjudagsganga

    24. maí 2013 - 26. maí 2013

    Uppskeruhátíð Fjallarefa í Básum

  • Everest

    Everest

    Dagskrá Everest-hóps Útivistar er sniðin að vönu göngufólki sem vill takast á við snarpa áreynslu á ögrandi fjöllum. Á árinu 2013 verða jafnvel farnar ótroðnar slóðir sem ekki hafa verið gengnar fyrr. Tvær helgarferðr eru á dagskránni, í maí og september. Á tímabilinu janúar-mars eru vikulegar kvöldgöngur á miðvikudögum og er þá farið á fjöll/fell í nágrenni borgarinnar. Lengri göngur eru þriðja hvern laugardag, að undanskildu stuttu sumarfríi. 

    Skráningargjald í hópinn er einungis 20.000 kr. og innifalið í því eru kvöldgöngurnar í janúar-mars. Verð á laugardagsgöngunum er 3.000 kr. fyrir félagsmenn í Útivist og 4.000 kr. fyrir aðra. Farið er á einkabílum á upphafsstað göngu. Þátttakendur sameinast í bíla og deila með sér eldsneytiskostnaði. 

    Fjöldi þátttakenda í hópnum er takmarkaður. Hópurinn er einungis ætlaður þeim sem greitt hafa skráningargjaldið. 

    Fararstjórar eru Reynir Þór Sigurðsson, Stefán Birgisson, Kristíana Baldursdóttir, Unnur Jónsdóttir og Leifur Hákonarson. 

    Næstu ferðir

    24. maí 2013 - 26. maí 2013

    Everest: Birnudalstindur

  • Útivistar-
    ræktin

    Útivistarræktin

    Ókeypis göngur í nágrenni höfuðborgarinnar

    Útivistarræktin hefur verið við lýði um árabil og hefur mælst mjög vel fyrir. Gengið er tvisvar í viku og er þátttaka mjög góð. Með því að taka þátt í Útivistarræktinni fæst góð líkamsrækt og um leið hentugur undirbúningur fyrir krefjandi ferðir. Þá spillir ekki fyrir að þátttaka í Útivistarræktinni kostar ekkert og allir eru velkomnir.

    Á mánudögum er gengið um Elliðaárdalinn. Lagt er af stað kl. 18:00 frá Toppstöðinni (stóra brúna húsinu í Elliðaárdalnum, ekið frá Ártúnsbrekku, sjá kort).

    Á miðvikudögum er einnig gengið um Elliðaárdalinn, brottför frá sama stað og á mánudögum en nú kl. 18:30. Í miðvikudagsgöngunni er hins vegar farið hægar yfir.

    Frá apríl og fram í september breytast miðvikudagsgöngurnar með þeim hætti að þá er farið í göngur í nágrenni borgarinnar, en sameinast í bíla við Toppstöðina. Fararstjóri frá Útivist hefur umsjón með göngunni og velur leið hverju sinni. Sama gildir um þessar göngur og aðrar göngur Útivistarræktarinnar að þátttaka kostar ekkert, að öðru leyti en því að farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns.