12. nóvember 2009
Það var fámennt en góðmennt þegar lagt var af stað í hraðferð um Laugaveginn. Þátttakendur voru ekki fleiri en svo að fararstjóri og sex óbreyttir ferðalangar komust allir fyrir í trússjeppanum hans Skúla framkvæmdastjóra Útivistar. Í hópnum voru bæði Sunnlendingar og Norðlendingar, en kynjahlutfallið var frekar bjagað því þarna voru