Velkomin að myndasögum Útivistar

Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.

Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com

Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.

         

_______________________________________________________________________

02. febrúar 2012

Fimm gönguskíðamenn mættu á BSÍ síðasta sunnudagsmorgun janúarmánaðar til að fara í Útivistargönguskíðaferð. Jói rútubílstjóri var sendur heim og mátti hann kúra áfram en fimmmenningarnir fóru í skíðaferð á einkabílum. Vangaveltur voru um hvert átti að fara, á Mosfellsheiði eða Hellisheiði og gátu fimmmenningarnir ekki ákveðið sig þar til einn

31. janúar 2012

Eftir átta ár í hjólarækt var komið að hundruðustu hjólaferðinni annan laugardag í janúar. Fjórir hjólamenn mættu í Elliðaárdalinn á hjólinu sínu. Það var fljúgandi hálka, grenjandi rigning og hyldjúpir pollar. En þessir fjórir voru vel útbúnir, á negldum dekkjum, með hjálm og í stígvélum sem veitti ekki af við

29. janúar 2012

11 manns mættu á BSÍ til að fara í fyrstu gönguskíðaferð ársins. Sæmundur keyrði hópinn upp í Bláfjöll en þurfti að stoppa tvisvar á leiðinni til að taka upp fjóra puttalinga. Við Suðurgil spenntu gönguskíðamenn skíðin undir og lögðu af stað inn í smá þoku. Færðin var

08. janúar 2012

Hópurinn Einn og hálfur Everest hélt á Heiðarhorn í nóvemberlok. Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar.

06. desember 2011

Hópurinn Einn og hálfur Everest hélt á Hátind Esju í októberlok. Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar.

04. desember 2011

Hópurinn Einn og hálfur Everest hélt á Heklu á laugardagsmorgni í október. Snjór var yfir öllu en bjart framan af. Þegar líða tók á daginn dimmdi aðeins yfir en ekki það mikið að það hefti för. Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar.

01. desember 2011

Garparnir í hópnum Einn og hálfur Everest skelltu sér á Högnhöfða 5. nóvember. Gengið var upp með Brúarárskörðum og þá upp á Högnhöfða. Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar

28. nóvember 2011

Jeppadeild Útivistar fór í ferð um Fjallabak um helgina 4-6 nóv. Fyrri nóttina gist í nýuppgerðum Dalakofa - þá seinni í skálanum við Strút norðan Mælifellssands. Á laugardag var farið um Pokahryggi niður á Dómadalsleið. Síðan ekin Fjallabaksleið nyðri og í Strút um Álftavatnskrók. Frá Strút á sunnudeginum um Fjallabaksleið

28. október 2011

8 hressir hjólakappar létu ekki smáskúrir og vind stoppa sig annan laugardag í röð og mættu við Toppstöðina í Elliðaárdal kl. 9 á laugardagsmorgun. Hjólum og fólki var troðið í 2 bíla og haldið af stað. Veðurspáin boðaði batnandi veður, svo byrjað var á að bruna í Borgarnes og taka

27. október 2011

Níu manns mættu í hjólaræktarferð í september á fallegum sólardegi. Ákveðið var að hjóla meðfram Sæbrautinni enfyrst voru gömlu þvottalaugarnar í Laugardal skoðaðar. Eftir það brunuðu hjólagarpar niður að Sundahöfn þar sem risastórt skemmtiferðaskip lá. Hjólað var í átt að miðbænum meðfram sjónum. Við Kaffivagninn var farið í kaffipásu. Hjólaræktargarparnir