|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Opið alla virka daga 12 -17 Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 utivist@utivist.is |
Laugardagur 31. júlí.
Brottför frá Bjarkalundi kl. 10:00. Ekið vestur Barðastrandarsýslu og Þingmannaheiðin farin yfir í Vatnsfjörð (tekur ca 1,5 tíma að aka Þingmannaheiðina, krefjandi slóð). Ekinn línuvegur frá Dynjandisheiði og vestur í Tálknafjörð (tekur ca 2,5 - 3 tíma að aka þennan slóða, væntanlega nokkuð seinfarið á óbreyttum bílum). Þeir sem eru með tjaldvagna eða fellihýsi eða vilja ekki fara þessa torslóða geta ekið þjóðveginn til Tálknafjarðar og þess vegna komið þaðan upp slóðann á móti okkur hinum. Gist verður á tjaldstæðinu á Tálknafirði.
Sunnudagur 1. ágúst.
Farið út á Látrabjarg, genginn smá spölur upp með bjarginu. Ekið niður slóðann til Keflavíkur. Farþegar geta fengið sér göngutúr frá Keflavík út á Rauðasand. Ca 7 km eftir fjörunni, ca 3 - 4 tíma ganga. Þarf að príla yfir eina ófæru á leiðinni sem nær í sjó fram. Ekið út á Rauðasand og göngugarpar fá far með bílum á ný. Ekið um sveitir Patreksfjarðar og Tálknafjarðar. Ef tími vinnst til, þá kíkum við á Flugminjasafnið á Hnjóti og/eða Sjóræningasafnið á Patreksfirði. Gist verður á tjaldstæðinu á Tálknafirði.
Mánudagur 2.ágúst.
Ekið sem leið liggur yfir Hálfdán á Bíldudal og út Ketildali. Tökum hús hjá Gísla á Uppsölum og einnig kíkt á safn Samúels Jónssonar, listamannsins með barnshjartað. Ekið fyrir Arnarfjörð, fossinn Dynjandi skoðaður. Farþegar gætu gengið frá þjóðveginum að fossinum ofan frá og niður með ánni. Ca 1,5 km. Ekið framhjá Mjólkárvirkjun og út að Hrafnseyri. Ekið út í Lokinhamradal og fyrir Sléttanesið. Þarna er hið fræga vegstæði þar sem Elís Kjaran hjó veginn inn í bjargið að hluta. Gist verður á tjaldstæðinu á Þingeyri.
Þriðjudagur 3. ágúst.
Ekinn ágætur jeppaslóði upp í Kvennaskarð. Úr Kvennaskarði má fylgja fjallshryggnum yfir í Meðaldalsskarð og ógreinilegum stíg fylgt upp á topp Kaldbaks, hæsta fjalls Vestfjarða. Á toppnum er tveggja metra há varða sem gefur ferðalöngum tækifæri á að ná þúsund metra hæð. Í vörðunni er líka gestabók. Alhörðustu göngugarpar hópsins gætu auðvitað gengið alla leið, en þyrftu þá að leggja fyrr af stað á fjallið, ca 3 tímum á undan jeppafólki. Af Kaldbak er auðvitað mikið útsýni í allar áttir. Þeir sem vilja ekki, eða treysta sér ekki á tindinn, geta ekið niður í Arnarfjörð og komið Hrafnseyrarheiði yfir á Þingeyri á ný. Þegar hópurinn hefur safnast saman á ný, verður farið að Núpi og yfir Sandsheiði og á Ingjaldssand. Ekið til baka yfir heiðina og sem leið liggur til Ísafjarðar. Gist verður á tjaldstæðinu í Tunguskógi.
Miðvikudagur 4. ágúst.
Ekið um nágrenni Ísafjarðar, út í Hnífsdal, Bolungarvík, Skálavík og uppá Bolafjall ef vegurinn þangað er opinn. Ekið upp á Breiðadalsheiði og þaðan er t.d. hægt að ganga niður í Tungudal og yfir á Seljalandsdal. Einnig er hægt að aka uppá Þverfjall. Fyrir alhörðustu jeppamenn væri hægt að aka af Botnsheiði eftir línuvegi til Bolungarvíkur. Fer eftir hvort allur snjór sé farinn í skarðinu við Kistufell (línuvegur sennilega bara fær breyttum bílum). Ef tími vinnst til, þá verður ekið til Flateyrar og / eða Suðureyrar. Góð útisundlaug er á Suðureyri. Gist verður á tjaldstæðinu í Tunguskógi.
Fimmtudagur 5. ágúst.
Ekið sem leið liggur inn Djúp, yfir Hestakleif og Kollafjarðarheiði yfir í Barðastrandasýslu og inn í Þorskafjörð. Ef menn hafa ekki fengið nægju sína af slóðum, þá er ágætur slóði sem liggur upp að Vaðalfjöllum. Ferðinni líkur svo formlega á sama stað og hún hófst, þeas við Bjarkarlund og ferðalangar geta farið hver í sína áttina. Td tekur það ca 2,5 tíma að aka á milli Reykjavíkur og Bjarkalundar.