Þessi leið er helsta skrautfjöður Útivistar. Þessi ferð hefst með göngu á Sveinstind. Útsýnið yfir hinn margrómaða Langasjó, sem kúrir upp við Vatnajökul, er hreint ólýsanlegt. Í góðu skyggni má líta yfir bróðurpart hálendis Íslands. Leiðin liggur svo um fáfarnar slóðir, söndugar og mosavaxnar; meðfram Skaftá og um leynistigu með Uxatindum og fram grösuga Skælinga, en ganga á Gjátind og um sjálfa Eldgjá er góður lokakafli á þessari margbreytilegu göngu sem lýkur í Hólaskjóli. Rétt er að vekja athygli ferðalanga á því að í upphafi ferðar er ekið framhjá Hólaskjóli og því geta þeir sem vilja
gera sér dagamun í lok ferðar skilið þar eftir vistir.