|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Opið alla virka daga 12 -17 Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 utivist@utivist.is |
Á síðasta áratug hefur viðhorf almennings til ferðalaga og hreyfingar gjörbreyst. Áður voru gönguferðir um fjöll og firnindi einungis stundaðar af þröngum hópi fólks. Nú er öldin önnur og almennur áhugi er á hollri hreyfingu og gönguferðum. Auk þess að njóta frelsis og umhverfisins þá er ekki síður mikilvægt að geta notið þess að vera til í félagsskap við samferðamennina. Ávinningur af góðri fjallaferð er góð hreyfing, góðar minningar, skemmtileg upplifun og fyrirheit um frekari ferðalög í framtíðinni.
Á Goðalandi er úrval gönguleiða, hvort heldur sem menn kjósa auðvelda göngu eða að horfa til tindanna. Allir ættu að finna gönguleið við sitt hæfi hvort sem er að ganga inn að Tungnakvíslarjökli eða upp á Útigönguhöfða, um Gathillur eða Básahring svo nokkrar leiðir séu nefndar. Útivist hefur gefið út göngukort með leiðarlýsingum um Þórsmörk og Goðaland.
Básar eru einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna sem koma til Þórsmerkur og Goðalands. Þar á Útivist tvo skála með gistirými í svefnpokaplássi. Skálarnir eru kyntir með olíueldavélum og rafstöðin Básabína nýtir vatn úr bæjarlæknum til ljósa. Í skálunum er eldhús með eldhúsbúnaði, rennandi vatn og gashellur til eldunar. Á sumrin er rennandi vatn í skálunum og vatnssalerni í sérstöku snyrtihúsi með sturtum. Utan dyra eru útigrill sem allir gestir hafa aðgang að. Einnig eru steikarholur fyrir þá sem vilja heilsteikt lambalæri eða aðrar stórsteikur. Á laugardagskvöldum er kveiktur varðeldur þar sem gestir safnast saman, hitta aðra og syngja saman.
Veðursæld er mikil í Básum og á Goðalandi, það getur verið hellirigning í sunnan- eða suðaustanátt í byggð, en glampandi sól í Básum.
Skálarnir í Básum.
Veðrið í Básum.