Laugavegurinn á fjórum göngudögum og aukadagur í Básum (6 dagar)


Gönguleiðin á milli Landmannalauga og Þórsmerkur (Bása) kallast Laugavegurinn. Útivist býður á hverju sumri upp á nokkrar ferðir um svæðið og er oftast um að ræða trússferðir sem taka 5 daga og er ýmist gist í skálum eða tjöldum á leiðinni. Í ferðinni gefst ferðafólki kostur á að kynnast ótrúlega fjölbreyttu og fögru landslagi.  Má þar nefna heitar laugar, hveri og jökla. Litadýrð og fegurð landslagsins er slík að ekki verður lýst með orðum. 

1. dagur  
Brottför kl. 08:30 að morgni frá BSÍ við Vatnsmýrarveg og ekið í Landmannalaugar. Þar fær fólk sér að borða áður en haldið er áfram í Hrafntinnusker og þarf þar að taka drykkjarvatn fyrir daginn. Fyrst er gengið um Laugahraun að Brennisteinsöldu og inn að Stórahver og síðan áfram að Hrafntinnuskeri. Vegalengd í Höskuldsskála er 12 km og áætlaður göngutími 4-5 klst. 
Eftir að ferðalangar hafa komið sér fyrir og fengið sér hressingu í Höskuldsskála í Hrafntinnuskeri er tilvalið að fara í kvöldgöngu til að skoða nágrennið.  T.d. er hægt að ganga á Söðul sem er fjall rétt við skálann en í góðu veðri er þar mikið útsýni. Einnig er stundum gengið að íshellunum í Hrafntinnuskeri.

2. dagur
Nú liggur leiðin niður á við og farið með Reykjafjöllum og Kaldaklofsfjöllum og síðan fram á brúnir Jökultungna. Ef veður er gott er kjörið að taka á sig krók og ganga á hæsta fjall á þessum slóðum, Háskerðing 1281 m y.s. í Kaldaklofsfjöllum, en þaðan er afbragðs útsýni. Vaða þarf Grashálskvísl og Bratthálskvísl. Líklegt er að göngufólk verði fegið að geta teygt úr sér þegar komið er að Hvanngili þar sem er gist. Vegalengd er u.þ.b. 16 km og áætlaður göngutími 6-8 klst.

3. dagur  
Úr Hvanngili er haldið í suðurátt og farið yfir Kaldaklofskvísl á göngubrú og skömmu síðar þarf að vaða Bláfjallakvísl. Um 4 km síðar er farið yfir Nyrðri–Emstruá á brú og haldið áfram um slétta sanda niður að skála og tjaldstæði í Botnum. Áætlaður göngutími er 6-7 klst. og vegalengd 16 km.

4. dagur
Gengið niður að Syðri-Emstruá sem rennur undan Entujökli, farið yfir hana á göngubrú og er þá komið á Almenninga og stefna tekin í Bása. Litið er á hrikalegt gljúfur þar sem mætast Syðri-Emstruá og Markarfljót áður en haldið er suður Almenninga. Þar liggur leiðin m.a. um Slyppugil, Bjórgil og yfir Ljósá á lítilli göngubrú. Gengið er upp og yfir Kápu og niður að Þröngá sem þarf að vaða. Eftir þetta er gengið inn að skálunum góðu í Básum. Vegalengd um 15 km og áætlaður göngutími 5-7 klst.

Um kvöldið verður grillveisla í paradísinni í Básum.

Í Básum er góð aðstaða. Þar er hægt að gista í tjaldi eða í skála.  Hægt er að komast í sturtu, kr. 300. Ætti göngufólk því að geta átt ánægulega kvöldstund að lokinni langri gönguferð  í veðursælli gróðurvin á Goðalandi. Ef þörf er á er hægt að láta senda farangur í Bása sem bíður fólks þegar það kemur úr ferðinni.
Básar á Goðalandi.
Veðrið í Básum.

5. dagur
Þennan dag er kjörið að nota annaðhvort til þess að kynnast Goðalandi betur og fara í gönguferðir á Goðalandi eða í Þórsmörk eða til að hvíla sig og slappa af eftir gönguna.

6. dagur
Áður en haldið er til Reykjavíkur með rútu er gott að fara í gönguferðir um svæðið.


Oft er raunin sú að þeir sem fara í skipulagðar ferðir eins og þær sem Útivist býður upp á hafa ekki mikla reynslu af ferðamennsku.  Þegar farið er í langar gönguferðir eins og um Laugaveginn eru mörg lítil atriði sem geta breytt afar ánægjulegri ferð í erfitt og leiðinlegt ark á milli tveggja staða. Til að búa ferðafólk sem best undir ferðina er haldinn fundur þar sem fararstjóri hittir alla þá er hafa áhuga á að fara í ferðina.  Á þessum fundi segir fararstjóri frá ferðatilhögun og nauðsynlegum útbúnaði til ferðarinnar og öðru sem þátttakendur hafa áhuga á að fá upplýsingar um. Á undirbúningsfundum sameinast fólk gjarnan um tjöld ef þörf er á.  

Undirbúningsfundirnir eru haldnir um það bil viku fyrir hverja ferð.  
 
Brottför 30. júní, 14. júlí  og 11. ágúst.


Útbúnaðarlisti

Almennur farangur
· Svefnpoki.
· Bakpoki.
· Prímus og pottur (2 - 3 geta sameinast um prímus).
· Flugnanet.
· Eldfæri.
· Hitabrúsi u.þ.b. 1/2 l.
· Vatnsbrúsi.
· Drykkjarílát, diskur og hnífapör.
· Hreinlætisvörur, s.s. tannbursti, sápa og klósettpappír.
· Sólarvörn og varasalvi.
· Sólgleraugu.
· Skyndihjálparbúnaður s.s. plástur á hælsæri, teygjubindi og verkjalyf.


Klæðnaður  
Fátt er eins stór þáttur í vellíðan ferðalangs og fatnaður.  Veðurfar á Íslandi er óútreiknanlegt og því er nauðsynlegt að fatnaður verji notandann sem best fyrir því veðri sem von er á og einnig því veðri sem ekki er von á.

· Mjúkir eða hálfstífir gönguskór og varareimar.  Skórnir þurfa að halda vatni og kulda frá fótunum
  og einnig þurfa þeir að styðja vel við ökklann.
· Legghlífar eru ekki nauðsynlegar en æskilegt er að hafa þær með.
· Göngubuxur úr gerviefnum eru góðar.  Gallabuxur og annar bómullarfatnaður er afleitur og óþarft að hafa slíkan
  fatnað í farangrinum.
· Hlý nærföt úr ull eða gerviefnum.  Nærfötin þurfa að halda raka frá líkamanum.
· Göngusokkar úr ull og gerviefnum. 
· Peysa og/eða skyrta (þunn flíspeysa er oft góð). 
· Vind- og vatnsheldur galli (t.d. gore-tex).
· Vettlingar og húfa.
· Tvö til fjögur aukapör af sokkum.
· Vaðskór, t.d. strigaskór, sandalar eða laxapokar.

Matur  
Mataræði í langri ferð sem þessari er eitt af undirstöðuatriðum ánægjulegrar ferðar.  Nauðsynlegt er að huga vel að því hvaða matar skal neytt í ferðinni og einnig er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því að ekki er sama hvaða matar er neytt á mismunandi tímum dagsins.  Mikill munur er á því sem borðað er á morgnana og því sem neytt er á kvöldin að göngu lokinni.

· Á morgnana er gott að neyta matar sem er ríkur af kolvetnum s.s. gróft korn og ávextir.  Einnig
  er gott að neyta próteinríkrar fæðu, en prótein fást úr kjöti, fiski, eggjum og mjólkurvörum.
  Dæmi um morgunmat er 100 - 150 gr. af múslí, hrökkbrauð með smjöri og osti og svo er ágætt
  að drekka te eða kaffi.
· Í hádegismat er gott að borða flatbrauð eða brauð með kæfu eða osti, heita pakkasúpu og
  orkuríkt nasl á eftir.
· Á kvöldin er gott að borða fituríka fæðu, því þá hefur líkaminn nægan tíma til að melta fæðuna.
  Vinsælt er að nota frostþurrkaðan mat sem fæst í útilífsverslunum.  Þessi matur er frekar dýr og
  því má einnig mæla með pasta og sósu.  Eftir kvöldmatinn er gott að hita vatn í kakó og borða
  kex eða súkkulaði með.
· Gott er að hafa eitthvað til að grípa í á göngu á daginn, s.s. rúsínur, súkkulaði eða kex. 

Trúss

Þótt ferðirnar séu trússferðir er gott að hafa í huga að trússbíllinn er ekki mjög stór.  Því skal takmarka umfang þess farangurs sem tekinn er með. Ágætt er að taka ekki meira með en í hefðbundinni ferð þar sem gengið er með allan farangur. Ganga verður þannig frá öllum farangri að hann blotni ekki þó rigni á hann.  Ef farangur er sendur í Bása skal merkja hann skálaverði í Básum og eiganda og taka skal fram í hvaða ferð eigandi er. Pakkaafgreiðsla BSÍ sér um flutninginn og greiða þarf sérstaklega fyrir sendinguna.