Á síðasta áratug hefur viðhorf almennings til ferðalaga og hreyfingar gjörbreyst. Áður voru gönguferðir um fjöll og firnindi einungis stundaðar af þröngum hópi fólks. Nú er öldin önnur og almennur áhugi er á hollri hreyfingu og gönguferðum. Auk þess að njóta frelsis og umhverfisins þá

Þegar gengið er yfir Fimmvörðuháls á einum degi er brottför frá BSÍ kl. 08:30 að morgni laugardags. Rúta flytur hópinn að Skógum og er gangan í megin atriðum eins og næturganga yfir Fimmvörðuháls, en ekki er gist í skálanum á Hálsinum heldur gengið á einum degi í Bása.

Nú er ætlun Útivistar að bjóða upp á nýbreytni við þessa gamalgrónu gönguleið, en sú gamla verður þó að sjálfsögðu áfram í hávegum höfð. Jómfrúarferðin var farin í tengslum við 30 ára afmælishátíð félagsins. Frá og með sumrinu 2006 verður hún reglulega á dagskrá. Nýbreytnin

Ein fjölmennasta ferð Útivistar á ári hverju er Jónsmessunæturgangan. Þessi ganga hefur verið gríðarlega vinsæl undanfarin ár og fjöldi fólks hefur tekið þátt í henni. Lagt er af stað á föstudagskvöldi og um nóttina. Brottför frá BSÍ kl. 17:00, 18:00 og 19:00.

Raðganga Útivistar sem hófst 2. mars 2008, gengur undir nafninu Langleiðin . Segja má að þarna sé m.a. farið í fótspor Steingríms J. Sigfússonar alþingismanns og því er þessi leið gjarnan nefnd Steingrímsstígur . Í fyrstu voru áfangarnir farnir í dagsferðum en þegar lengra leið á sumarið og komið var

Gönguleiðin á milli Landmannalauga og Þórsmerkur (Bása) kallast Laugavegur. Útivist býður á hverju sumri upp á nokkrar ferðir um svæðið og er oftast um að ræða trússferðir sem taka 5 daga og er ýmist gist í skálum eða tjöldum á leiðinni. Í ferðinni gefst ferðafólki kostur á að

Þessi ferð hentar þeim vel sem ekki geta séð af mörgum frídögum og eru í þokkalegu gönguformi. Einnig er þetta góð ferð fyrir þá sem hafa áhuga á því að reyna aðeins á sig og fara hratt yfir. Líkt og í þriggja daga göngunni er brottför að kvöldi

Lagt er af stað að kvöldi og ekið í Landmannalaugar. Næsta morgun er gengið sem leið liggur að Álftavatni og gist þar. Frá Álftavatni er gengið í Botna og síðan í Bása, líkt og í klassískri göngu um Laugaveginn. 1. dagur Brottför frá

Gönguleiðin á milli Landmannalauga og Þórsmerkur (Bása) kallast Laugavegurinn. Útivist býður á hverju sumri upp á nokkrar ferðir um svæðið og er oftast um að ræða trússferðir sem taka 5 daga og er ýmist gist í skálum eða tjöldum á leiðinni. Í ferðinni gefst ferðafólki kostur á

Næturganga Útivistar yfir Fimmvörðuháls hefst á BSÍ kl.17:00 á föstudegi. Ekið er að Skógum þar sem gangan hefst hjá hinum tignarlega Skógafossi. Brekkan upp með fossinum er nokkuð á fótinn og heppileg til að hita vöðvana fyrir gönguna, en eftir það er nokkuð aflíðandi hækkun upp á Hálsinn.

Gengið um svæði þar sem háfjallagróður ræður ríkjum í skjóli jökla og hárra fjalla. Göngumenn njóta náttúrufegurðar og hinnar sönnu fjallakyrrðar í Hólmsárbotnum og upplifunin verður fullkomin með fjallabaði í heitri Strútslaug. Að loknum góðum degi tekur skáli Útivistar við Strút á móti ferðalöngum, en hann er einn

Þessi leið er helsta skrautfjöður Útivistar. Þessi ferð hefst með göngu á Sveinstind. Útsýnið yfir hinn margrómaða Langasjó, sem kúrir upp við Vatnajökul, er hreint ólýsanlegt. Í góðu skyggni má líta yfir bróðurpart hálendis Íslands. Leiðin liggur svo um fáfarnar slóðir, söndugar og mosavaxnar; meðfram Skaftá og um