Græn ganga 1. maí til varnar almannaréttinum og ferðafrelsi

28. apríl 2014

Útivist, Landvernd, önnur umhverfisverndar, ferða- og útivistarfélög efna til grænnar göngu 1. maí í samstarfi við stéttarfélög. Efnt er til göngunnar til að krefjast þess að almenningur hafi áfram, eins og hingað til frjálsan aðgang að náttúru Íslands og að almannarétturinn verði virtur. Að undanförnu hefur verulega borið á tilraunum til þess að takmarka sjálfsagðan almannarétt þjóðarinnar, t.d. með gjaldtöku við náttúruperlur og tillögu um náttúrupassa.   

Þátttakendur safnast saman um kl. 13:00 við hestinn á Hlemmi. Gengið verður aftast í 1. maí göngu stéttarfélaganna sem hefst kl. 13:30. Að dagskrá lokinni á Ingólfstorgi kl. 15 verður gengið að Alþingishúsinu þar sem þúsund grænum fánum verður stungið niður. Göngumenn eru hvattir til að klæðast grænu.

Náttúran er ein dýrmætasta sameign þjóðarinnar. Náttúran, með víðernum og fegurð landsins er einnig orðin okkar helsta tekjulind með örum vexti í ferðaþjónustu. Samhliða því hafa forráðamenn landsvæða takmarkað för fólks um náttúruperlur með gjaldtöku við Geysi og Kerið í Grímsnesi. Einnig er unnið að tillögum um svonefndan náttúrupassa, sem er útfærsla á gjaldi fyrir að skoða náttúru Íslands. Komið hefur fram í skoðanakönnunum að meirihluti landsmanna er mótfallinn slíku gjaldi. Þá hefur þess orðið vart í auknum mæli að landeigendur reyni að takmarka för fólks með því að loka vegum og fornum leiðum með keðjum og hliðum.

Almannarétturinn og ferðafrelsið eru því í greinilegri hættu. Krafa grænu göngunnar í ár er að þau beri að vernda og virða.

Eftirfarandi félög standa að grænu göngunni 2014: Landvernd, Ferðaklúbburinn 4x4, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist, Samtök útivistarfélaga (SAMÚT), Ungir umhverfissinnar, Alda – félag um sjálfbærni og lýðræði, Fuglavernd, Framtíðarlandið, Náttúruverndarsamtök Austurlands, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands, Náttúruverndarsamtök Suðurlands, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, Náttúruvaktin, Sól á Suðurlandi, Eldvötn, Umhverfisvaktin við Hvalfjörð og Græna netið.

Á Facebook hefur verið stofnaður viðburður fyrir gönguna.