Dags: 23.5.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið sem leið liggur upp í Mosfellsdal. Beygt til hægri inn á afleggjara rétt neðan við Gljúfrastein. Gengið upp með Köldukvísl að Helgufossi. Umhverfi Helgufoss er náttúruperla sem er alltof fáum kunn, þar er meðal annars álfakirkja auk selsrústa og svitahofs frá ofanverðri síðustu öld. Vegalengd 7 km. Hækkun óveruleg.
Dags: 30.5.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið upp í Mosfellsdal og beygt til hægri við skilti sem á stendur Hlaðgerðarkot. Beygt fljótlega aftur til hægri inn á afleggjarann upp í Skammadal. Lagt af stað frá rimlahliðinu í Skammaskarði rétt hjá garðyrkjuskúrunum. Gengið eftir fjallinu endilöngu upp á Gildruás og til baka um Skammadal. Vegalengd 5 km. Hækkun 100 m.
Dags: 6.6.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið að Botnsskála í Hvalfirði þar sem gangan hefst með því að gengið er á Selfjall. Þaðan er gengið ofan Kiðadal yfir á Háafell. Vegalengd 8 km. Hækkun 400 m.
Dags: 13.6.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið sem leið liggur upp í Bláfjöll að Grindaskörðum. Lagt er af stað upp Grindaskörð, gengið á Stórabolla og stefnan tekin í austur á Þríhnúka. Þríhnúkahellir er í austasta gígnum og er stærsti hraunhellir landsins. Sennilega er hann um 1000-2000 ára gömul eldkeila. Göngunni lýkur með því að halda í norðvestur niður þar sem heitir Kristjánsdalahorn. Vegalengd 9 km. Hækkun 300 m.
Dags: 20.6.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið til Bláfjalla að næstefsta bílastæðinu norðan við Strompa. Gengið yfir Strompa og áfram að Hvalhnúk. Vegalengd 10 km. Hækkun óveruleg.
Dags: 27.6.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Suðurlandsvegi, beygt til hægri inn á afleggjara sem er rétt ofan við Sandskeið og ekið áfram að malarnámum við rætur fjallsins. Fjallið er nokkuð bratt en af toppnum er mjög gott útsýni. Vegalengd 7 km. Hækkun 450 m.
Dags: 4.7.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið sem leið liggur austur í Þrengsli. Gangan hefst við Litla-Sandfell, gengið er þaðan að Geitafelli og farið upp norðvestanvert fjallið. Vegalengd 9 km. Hækkun 300 m.
Dags: 11.7.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið eftir Nesjavallavegi. Lagt af stað í gönguna ofarlega í Dyrafjöllum, við tankinn sem er hjá veginum til Nesjavalla. Farið um Háhrygg og þaðan á Skeggja. Vegalengd um 10 km. Hækkun 400 m.
Dags: 18.7.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið í gegnum Mosfellsdal að bílastæði við skíðaskálann og gengið þaðan á fjallið. Uppgangan er jafnt og þétt á fótinn en verðlaunin bíða þegar upp er komið því útsýni er fallegt til allra átta. Vegalengd 5 km. Hækkun 350 m.
Dags: 25.7.
Brottför: kl. 18:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Sameinast í bíla og lagt af stað frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Ekkert þátttökugjald en farþegar í bílum taka þátt í eldsneytiskostnaði með framlagi til ökumanns. Ekið sem leið liggur inn Hvalfjörðinn að Meðalfellsvatni. Gangan hefst við Eyrartjörn austan við Meðalfellið. Gengið verður upp Klauf, eftir Meðalfellsöxl og svo hring á Meðalfellinu. Vegalengd 8 km. Hækkun 300 m.
Næsta síða >>