Dags: 6.2.
Almennt verð: 900 kr.
Fyrsta myndakvöld ársins verður haldið mánudaginn 6. febrúar n.k. í Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 20:00.

Reynir Þór Sigurðsson sýnir myndir sem hann og Sigurður Orri Steinþórsson tóku í gönguferð Útivistar um Rauðasand og Látrabjarg um sl. verslunarmannahelgi. Meðal annars var farið í kolanámur í Stálfjalli og litast um á bænum Sjöundaá þar sem ein þekktasta sakamálasaga átti sér stað á nítjándu öld. Síðan var gengið vestur Rauðasand í Keflavík þaðan sem gengið var á Látrabjarg.

Aðgangseyrir 900 kr. Í lok sýningar verður að venju glæsilegt brauð- og tertuhlaðborð í boði kaffinefndar Útivistar.
Dags: 5.3.
Almennt verð: 900 kr.
Myndanefnd og kaffinefnd Útivistar standa fyrir 5 myndakvöldum yfir vetrartímann. Sýndar eru myndir sem félagsmenn hafa tekið á ferðum sínum auk þess sem gestaljósmyndarar eru fengnir til að sýna myndir. Myndirnar eru sýndar á stóru sýningartjaldi og stendur sýningin yfir í rúma klukkustund. Mikil aðsókn er að myndakvöldum félagsins sem eru öllum opin.
Dags: 02.04.