Útbúnaðarlisti. / Almennt um jeppaferðir


Í öllum ferðum á vegum Jeppadeildar Útivistar eru þátttakendur í hópferð á eigin bílum. Við höldum hópinn og hjálpumst að þegar með þarf. Samskipti milli manna fara fram í gegnum talstöðvar VHF á meðan verið er á ferð og gaman er ef sem flestir leggja sitt til málana bæði í gamni og alvöru. Auðvitað stoppum við svo hér og þar eftir þörfum yfir daginn auk gistinga í skála að nóttu.
 
Almennt gildir að taka með sér nóg af fatnaði til að geta verið úti í hvaða veðri sem er. Bílar geta bilað og einnig geta þeir orðið fastir og þá gildir að hópurinn vinni saman að úrlausn mála.  Í einstaka tilfellum geta bilanir verið með þeim hætti að skilja þurfi bíla eftir.
 
Nauðsynlegt í allar ferðir, vetur sem sumar:
Hlýr fatnaður
Aukaföt
Góðir gönguskór
Vatnsþéttur skjólfatnaður
Nesti fyrir ferðina, +varanesti til eins dags
Svefnpoki
Kort af svæðinu
Vasaljós / höfuðljós
Eldspýtur
Sólgleraugu
Sólarvörn
Sími (GSM samband er komið víða á hálendinu)
 
Til viðbótar í vetrarferðum:
Góðir vetlingar og húfa
Staðsetningartæki
Skíðagleraugu
Kuldagalli eða annar góður skjólfatnaður
Hitabrúsi fyrir heita drykki
 
Fyrir bílinn:
VHF talstöð
Loftdæla og loftmælir
Dekkjaviðgerðasett (eða varadekk)
Felgulykill
Dráttartóg
Reimar, hráolíusíur (fyrir díselbíla)
Kertaþræði, kerti, kveikjulok, hamar
Frostlögur
Smurolía á vél, gírkassa og drif
Bremsuvökvi
Verkfærasett
Hjólalegur
Hjöruliðskross
 
Til viðbótar í vetrarferðum:
Skófla
Startkaplar
Járnkarl / álkarl 
Vöðlur (æskilegar)
Slaghamar og meitill (til að brjóta ís af undirvagni)
 
Þessu til viðbótar má minna á eftirfarandi:
Drullutjakkur (amk. 1 í hverjum hóp)
Dráttarspil
Inniskór í skálaferðum
Sundföt/handklæði
Myndavél
Gashitari
Aðrir varahlutir skv. reynslu hvers og eins.
 
Gætið sérstaklega vel að því að vera með nægjanlegt eldsneyti miðað við eyðslu bílsins og fyrirliggjandi ferðaplan.  Ekki er óalgengt að í vetrarferðum í þungu færi þurfi að reikna með sem svarar einum tanki á dag.  Í sumarferðum er rétt að hafa í huga að langvarandi akstur í lágum gír þýðir jafnan meiri eldsneytiseyðslu en í langkeyrslu á þjóðvegum.