Dags: 7. - 8.1.
Brottför: kl. 10:00 frá Hvolsvelli.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1201J01
Hvað er ævintýralegra fyrir fjölskylduna en að hefja ferðaárið í þrettándaferð í Goðaland? Básar íklæddir vetrarskrúða eru veisla fyrir augað. Ef snjóalög eru hagstæð er upplagt fyrir gönguskíðafólk að skella sér með og fara á skíðum frá Stóru-Mörk inn í Bása, en jeppar flytji þá farangurinn í skála. Í Básum verður farið í léttar gönguferðir, slegið upp kvöldvöku og farið í blysför að brennunni. Flugeldasýningin fer eftir því hvað ferðalangar draga upp úr pússi sínu. Kröfur um búnað jeppa fara eftir færð og veðri. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.

Jón Tryggvi Þórsson.
Dags: 21. - 22.1.
Brottför: Kl. 09:00 frá Olís Rauðavatni
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 9400 kr.
Félagsverð: 7400 kr.
Nr. 1201J02
Nú er orðið tímabært að hreyfa hjólin á jeppanum og kanna snjóalög.  Þess vegna höfum við sett á jeppaferð í Dalakofann, en þar býður ferðalangra frábær aðstaða fyrir vetrarferðina. Farið af stað í býtið á laugardagsmorgni, en leiðarval spinna fararstjórar eftir því hvernig miðar. 

Fararstjórar eru Jón Viðar Guðjónsson og Tryggvi V. Traustason.