Dags: 4. - 9.8.
Brottför: auglýst síðar.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208J01
Við höldum áfram hringferð okkar umhverfis Vatnajökul og byrjum ferðina þar sem henni lauk árið 2011 á Öxi. Spennandi og fáfarnar leiðir þræddar á svæðinu frá Öxi og að Kverkfjöllum þar sem ferðinni lýkur.
Dags: 14. - 16.9.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 12500 kr.
Félagsverð: 10500 kr.
Nr. 1209J01
Þrjú hjól undir bílnum (og þú í vöðlum eða þurrbúningi – í vesti!). Í þessari ferð verða ferðir frumkvöðlanna rifjaðar upp og vöð yfir stórfljótin könnuð. Einnig verður farið í gegnum helstu grunnatriði við akstur yfir ár. Ekið í Hólaskóg og gist þar. Við byrjum á að kíkja á Bjallavað. Allir í gallana og vaðið kannað. Það er ekkert hér-um-bil hérna! Tak vaðstaf þinn og gakk! Síðan verður hið sögufræga Hófsvað kannað og lagt að velli ef aðstæður leyfa. Einnig verða skoðaðar fleiri fornar leiðir yfir Tungnaá áður en haldið verður áfram för í skála Útivistar í Strút. Síðasta dag ferðarinnar verður þess freistað að sulla yfir Markarfljót og Krossá í Bása. Þátttakendur hafi með sér vöðlur (eða búning) og vaðprik. Ánægja af straumþungum vötnum og skemmtilegri vaðvinnu skilyrði! Þátttaka háð samþykki fararstjóra. Fararstjóri Hlynur Snæland.
Dags: 2. - 4.11.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 12000 kr.
Félagsverð: 10000 kr.
Nr. 1211J01
Umhverfi Strúts á Mælifellssandi er draumaveröld fyrir vetrarferðamennsku. Hvar hefur vetrarsólin notið sín betur en á snæhvítum breiðum Mælifellssands? Snjóalög þar eru jafnan mikil. Þar eru falleg fjöll og jarðhiti. Snemma á laugardagsmorgni verður stefnan tekin á Sólheimajökul og yfir Mýrdalsjökul í Strút þar sem verður gist. Grill, góðmeti, gaman og gleði. Leiðarval á heimleið fer eftir færð og aðstæðum. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.