Dags: 25. - 28.5.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 30000 kr.
Félagsverð: 27000 kr.
Nr. 1205H01
Margir álíta að Brennu-Njálssaga sé magnaðasta bókmenntaverk þjóðarinnar. Upplifun af verkinu magnast enn frekar þegar vettvangur sögunnar er skoðaður, en í hvítasunnuferð Útivistar í ár er gengið og ekið um heimahérað þeirra Gunnars og Njáls og dregin upp mynd af atburðunum. Farið frá BSÍ kl. 19 á föstudagskvöldi og ekið að Smáratúni í Fljótshlíð og gist þar. Á laugardagsmorgni er ekið að Keldum á Rangárvöllum og gengið þaðan sunnan Knafahóla að Gunnarssteini á Rangárbökkum og þaðan áfram á Þríhyrning.