Þar sem færð fyrir rútur í Bása hefur verið nokkuð erfið það sem af er ári breytum við fyrirkomulagi Þorrablótsins. Farið af stað á laugardagsmorgun og ekið á eigin bílum að
Myrkholti fyrir ofan Geysi þar sem er gist og gleðin fer fram. Stefnan er tekin á kjarnmikla þorragleði með eðal mat og drukk, í skemmtilegum félagsskap þar sem maður skal vera manns gaman að hætti þeirra sem kunna að skemmta sjálfum sér og öðrum.