Dags: 10. - 12.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 17:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208H01
Þetta er helgin þegar Goðaland breytist í ævintýraheim barnanna. Börn á öllum aldri bregða á leik og njóta þess sem náttúran allt í kringum Bása býður upp á.
Dags: 11. - 12.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 8:30.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 17900 kr.
Félagsverð: 15500 kr.
Nr. 1208H02
Gengið yfir Fimmvörðuháls í einum áfanga á laugardegi. Gist í tjöldum í Básum. Á sunnudegi er farið í létta göngu á Goðalandi áður en rútan flytur hópinn heim. 
Dags: 18. - 19.8.
Brottför: kl. 8:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208H03
Ferð með allt á bakinu, gist í Húksheiðarskála sunnan Sléttafells eða tjöldum við skálann. Ferðin hefst við Fosssel upp af Hrútafirði og endar við Gilsbakka í Hvítársíðu. Gengið um heiðalönd á slóðum Heiðarvígasögu. Gömul þjóðleið sem oft var farin hér á öldum áður, en mjög fáfarin leið í seinni tíð. Vegalengd ca 45 km.
Dags: 17. - 19.8.
Brottför: auglýst síðar.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208H04
Tilvalin fjölskylduferð. Á föstudagskvöldi er mætt í Bjarkalund, tjaldað og berjadollur gerðar klárar fyrir morgundaginn. Daginn eftir er skipt liði, gengið á Vaðalfjöll og/eða farið í berjamó. Um kvöldið er borðað saman og sultuuppskriftir ræddar. Sunnudagur - enn meiri berjatínsla og haldið heim síðdegis.
Dags: 18. - 19.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 8:30.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 20500 kr.
Félagsverð: 16500 kr.
Nr. 1208H05
Gengið yfir Fimmvörðuháls í einum áfanga á laugardegi. Á sunnudegi er farið í létta göngu á Goðalandi áður en rútan flytur hópinn heim.