Dags: 6.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1205D01
Ferðin verður farin í samstarfi við Fuglavernd. Fuglaskoðun er félagslegur atburður og gaman að skoða fugla og atferli þeirra í tilhugalífinu. Farið verður á heppilegan stað, ekki of fjarri Reykjavík, en staðurinn verður valinn eftir aðstæðum þegar þar að kemur. Fólk er hvatt til að hafa með sér sjónauka og ljósmyndarar ættu að taka góðar aðdráttarlinsur með. Ferðin er skoðunarferð þannig að fólk þarf að hafa með sér góðan skjólfatnað. Skoðunartíminn er áætlaður 4-5 klst.
Dags: 13.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1205D02

Ganga umhverfis Hítarvatn þar sem ávallt birtist nýtt sjónarhorn á glæstan fjallahringinn. Fyrst verður gengið eftir alfaraleið við vatnið norðanvert. Vaða þarf eina á. Sunnanmegin er Foxufellið áberandi á vatnsbakkanum og þar liggur leiðin meðal annars um fornan stíg í gegnum Hólmshraunið. Vegalengd 15 km. Hækkun óveruleg. Göngutími 6-7 klst.

Dags: 20.5.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1205D03
Gengið verður upp með Bjarnadalsá og meðfram Baulu. Gamla leiðin um hina raunverulegu Bröttubrekku liggur innst í dalnum og yfir í Suðurárdal. Áhugavert er að sjá þróun í vegagerð frá þessari fyrstu þjóðleið um Bröttubrekku yfir í þann veg sem nú er ekinn. Vegalengd um 10 km. Hækkun 200 m. Göngutími 4 klst.