Dags: 16.6.
Brottför: frá BSÍ kl. 20:00. Ath. klukkan átta að kvöldi.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1206D03
Hefð er komin á að fara næturgöngu um hina fornu og vinsælu gönguleið yfir Leggjabrjót. Það er fátt skemmtilegra en að vera á ferðinni í góðum hópi á björtu sumarkvöldi. Frá Svartagili liggur leiðin um Leggjabrjót, meðfram Sandvatni, um Hrísháls og niður í Botnsdal. Þetta er nokkuð greiðfær leið þó nafnið gefi annað til kynna. Í þessum ferðum eru tekin nokkur hliðarspor af hefðbundinni leið og má þar nefna skoðunarferð að efri fossinum í Öxará. Einnig verður gengið að Myrkavatni þar sem Öxará á upptök sín og að Djúpadalsborgum fyrir vestan Sandvatn. Þessi ferð er góð upphitun fyrir Jónsmessugönguna yfir Fimmvörðuháls. Vegalengd 17 km. Hækkun 500 m. Göngutími 6-7 klst.