Dags: 1.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. kl. átta.
Erfiðleikastig:
Nr. 1207D01
Á undanförnum árum hefur Útivist haft þá venju að ganga á Snæfellsjökul á þessum tíma árs þótt hefðbundnum tíma jöklaferða sé löngu lokið. Lykillinn að þessu fyrirkomulagi er að fylgt er leið þeirri sem vélsleðamenn fara á jökulinn. Þannig er öryggið best tryggt. Það þarf vart að tíunda útsýnið af jöklinum. Í góðu veðri sést allt Snæfellsnesið, suðurströnd Vestfjarðakjálkans og Faxaflóinn. Ef snjórinn í Miðþúfu er nægilega gljúpur verður hún klifin, annars látið nægja að
Dags: 8.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1207D02
Eyjafjallajökull minnti svo rækilega á sig á ári 2010 að öll heimsbyggðin tók eftir. Við eldsumbrotin urðu talsverðar breytingar á landslagi í jöklinum sem forvitnilegt er að skoða og hér gefst færi á því með leiðsögn jarðfræðings. Gengið verður svokallaða Skerjaleið á jökulinn, upp hjá Grýtutindi sem er við Þórsmerkurleið. Þegar upp á Litluheiði kemur verður stefnan tekin á Skerin sem er fyrrum gossprunga sem nú stendur upp úr jöklinum. Gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli verða skoðaðar.
Dags: 22.7.
Brottför: frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1207D04
Gangan hefst við eyðibýlið Kötlutún vestan við Kalmanstungu. Gengið með rótum fjallsins að Draugagili sem er í fjallinu norðanverðu. Vert er að ganga inn í gilið og út frá því liggur annað gil þar sem gefur að líta stórar bergrósir. Eftir að gilin hafa verið skoðuð verður annað hvort gengið niður með Hvítá þar sem gefur að líta fossa og flúðir þar sem áin rennur í gegnum hraunið eða gengið upp á fjallið og þaðan