Dags: 12.2.
Brottför: Kl. 11
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 1500 kr.
Félagsverð: 1000 kr.
Nr. 1202D02
Ljósmyndaferð út á Reykjanes fyrir alla áhugasama, þar sem fólk miðlar sín á milli reynslu og kunnáttu í ljósmyndun. Farið er á einkabílum út að Garðskagavita á Reykjanesi þar sem reynt verður að fanga sólarlag ásamt hafi, himni og Snæfellsjökli sem sést í góðu skyggni í 100 km fjarlægð. Brottför frá bensínstöð N1 við Lækjargötu í Hafnarfirði kl. 11.  Mætið tímalega fyrir brottför og hafið þátttökugjald með í peningum (ekki hægt að greiða með korti).
Dags: 26.2.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1202D04
Í þessari ferð er boðið upp á tvo áhugaverða fjallstinda í einni og sömu ferðinni. Annar tindurinn er í bókinni Fólk á fjöllum og því er þessi ferð upplögð fyrir þá sem hyggjast stefna á að safna tindum bókarinnar. Lagt er af stað frá Gunnuhver og gengið með Rauðhólum yfir að Sýrfelli. Að lokinni göngu á Sýrfell er stefnt til strandar og Brimketill skoðaður. Þaðan er gengið um Háleyjabungu að Skálafelli og út á Reykjanestá áður en gengið er til baka að Gunnuhver. Vegalengd 15 km. Hækkun 70 m. Göngutími 5 klst.