Dags: 9.4.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 4900 kr.
Félagsverð: 3800 kr.
Nr. 1204D02
Sveifluhálsinn er röð af móbergstindum og hnúkum sem liggja meðfram Kleifarvatni að vestanverðu. Gengið verður frá Vatnsskarði eftir næstum endilöngum hálsinum. Hæsti hluti leiðarinnar er ekki í mikilli hæð, en hækkun er samt drjúg því hálsinn er mishæðóttur. Ágætis útsýni er af Sveifluhálsi en aðallega er hálsinn sjálfur áhugaverður, enda hafa veður og vindar myndað alls kyns form í móbergið. Vegalengd 14 km. Hækkun 600 m. Göngutími 6 klst.
Dags: 22.4.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 4900 kr.
Félagsverð: 3800 kr.
Nr. 1204D04
Gömul alfaraleið. Lagt upp frá Skíðaskálanum í Hveradölum suður um Lágaskarð á milli Stóra-Meitils og Stóra-Sandfells, að Eldborgunum og um Sanddali. Göngunni lýkur við Þrengslaveg undir Litla-Meitli. 
Vegalengd 8 km. Hækkun óveruleg. Göngutími 4 klst.